
Huawei X3 Pro Gold Mountain
Vörunr. HX3PRO
Birgðastaða
Helstu upplýsingar
Gleymdu því að troða netbeininum á bak við sófann eða upp á hilluna þar sem enginn sér hann. Huawei X3 Pro Suite er hannað til að standa eitt og sér sem stofustáss. Hreinar línur og vandað útlit sem passar jafnt í nútímalegt stofuhorn sem á heimsskrifstofu. Þetta er tæki sem fegrar rýmið.
Á bak við fagra útlitið leynist öflugt mesh netkerfi. Tvær einingar vinna saman sem eitt samræmt kerfi og dreifa þráðlausu merki jafnt um heimilið undir einu netheiti – án dauðra punkta og án þess að þú þurfir að skipta um net á milli herbergja. Wi-Fi 7 tæknin og heildarhraði upp að 3570 Mb/s sjá til þess að allt heimilið fær stöðuga og hraðvirka tengingu.
Öryggi er byggt inn í grunninn með WPA3 dulkóðun, innbyggðum eldvegg og foreldraeftirliti – þannig hefurðu fulla stjórn án þess að það sjáist á útlitinu.
Helstu eiginleikar:
Wi-Fi 7 (802.11be) með dual-band, 2,4 GHz og 5 GHz
Allt að 3570 Mb/s heildarhraði
2,5G WAN tengi fyrir hraðvirka nettengingu
Ethernet: 10 / 100 / 1000 / 2500 Mbit/s
6 innbyggð loftnet með MU-MIMO og beamforming
Huawei Mesh með sjálfvirkri tengingu á milli eininga
WPA2-PSK og WPA3-SAE dulkóðun
Innbyggður eldveggur og foreldraeftirlit
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



