
Vantar eitthvað í pakkann?
Við vitum að það eru engin tvö heimili eins. Þess vegna getur þú auðveldlega bætt við þjónustu eftir þínum þörfum - hvort sem það er ótakmarkaður farsími, myndlykill, heimasími, fjölvarp eða 5G net í bústaðinn. Við hjálpum þér að finna réttu lausnina - svo allt virki eins og þú vilt, heima, i bústaðnum og á ferðinni. Ef þig vantar frekari aðstoð býðst þér símtal frá ráðgjafa.



SÝN Sjónvarps appið
Horfðu hvar og hvenær sem þér hentar
Sjónvarpið þitt er ekki lengur bundið við stofuna! Með SÝN Sjónvarps appinu getur þú horft á þætti, kvikmyndir og íþróttir hvar sem er – í símanum, spjaldtölvunni, sjónvarpinu eða tölvunni. Appið er fáanlegt í Android og iPhone tækjum, sem og í Android TV, Apple TV og Amazon Fire. Þú getur líka horft beint í tölvunni á sjonvarp.syn.is.

Internet
Ótakmarkað net fylgir öllum pökkum
Háhraðatenging frá Sýn skilar þér stöðugu og öruggu Interneti með hraða allt frá 1 Gb upp í 10 Gb – fullkomið fyrir allt frá streymi og fjarvinnu til leikja og snjallheimilisins. Netið er ótakmarkað og hraðinn raungerist með nýjasta Wifi 7 netbúnaðinum sem fylgir með. Aðgangsgjald er innifalið. Þú þarft því ekki að hafa neinar áhyggjur – bara tengjast og njóta.



Íslensk afþreying í forgrunni
Sýn+ er stærsta íslenska streymisveitan og heimili hundruða klukkustunda af fjölbreyttri og vandaðri dagskrá. Þar finnur þú úrval af íslenskum þáttaröðum, skemmtiþáttum, heimildarmyndum og kvikmyndum – bæði glænýtt efni og sígilda íslenska sjónvarpsdagskrá sem margir vilja sjá aftur og aftur.
Auk íslenskrar dagskrárgerðar býður Sýn+ upp á fjölbreytt úrval erlendra þáttaraða og kvikmynda - bæði frumsýningar á nýju efni og vinsælu klassísku. Fyrir börnin er úrvalið ekki síðra - bæði íslenskt barnaefni og vinsælt erlent með íslensku tali.
Sýn+ er fyrir alla - hvort sem þú vilt detta í nýja seríu, horfa á kvikmynd með fjölskyldunni eða finna skemmtilegt og öruggt efni fyrir yngstu áhorfendurna. Sýn+ fylgir öllum pökkum

Besta sætið
Sýn Sport er heimavöllur þeirra sem fylgjast með íþróttum. Yfir 2.000 beinar útsendingar á ári, hágæða dagskrárgerð og íslensk umfjöllun - allt frá efstu deildum í íslenskum fótbolta og körfubolta til skærustu stjarnanna í ensku úrvalsdeildinni og meistaradeild Evrópu. Íslenskar íþróttir skipa sértakan sess á Sýn Sport - með beinum útsendingum frá íþróttum sem skipta máli. Áhorfendur sitja því í besta sætinu þegar leikurinn hefst.
Hvort sem þú ert harður stuðningsmaður eða nýtur þess að horfa á stóru stundirnar með fjölskyldunni, þá er Sýn sport staðurinn til að vera á þegar það gerist.



Viaplay
Stórmyndir, stórstjörnur og stórar stundir
Viaplay sameinar það besta úr tveimur heimum: afþreyingarefni og íþróttaviðburði. Hér finnur þú vandaðar þáttarseríur, margverðlaunaðar kvikmyndir og glæpasögur sem halda þér við skjáinn – ásamt fjölskylduvænu barnaefni og sígildum myndum sem gaman er að sjá aftur. Fyrir íþróttaáhugafólk býður Viaplay upp á útsendingar frá Formúlu 1, FA Cup, Bundesliga og margt fleira. Hvort sem þú vilt skella þér í seríumaraþon, horfa með börnunum eða fylgjast með stóru stundunum í beinni – þá finnur þú það allt á Viaplay. Viaplay kvikmyndir og þættir fylgir pökkunum Góður og Betri og Viaplay Total fylgir pakkanum Bestur.
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



