
Xiaomi 17 512GB
Vörunr. 72971
Birgðastaða
Helstu upplýsingar
Kaupauki
hægt að sækja um kaupauka fyrir hvert keypt tæki
Sækir um kaupaukann HÉR
50W ferðahátalari frá Xiaomi
Gildir út 12.apríl
Xiaomi 17 5G
Xiaomi 17 5G er öflugur snjallsími í nettari stærð sem sameinar hraða, framúrskarandi myndavél og langa rafhlöðuendingu. Hann er hannaður fyrir notendur sem vilja kraftmikla frammistöðu, bjartan skjá og áreiðanlegan vélbúnað í tæki sem er þægilegt í hendi.
Síminn er knúinn Snapdragon 8 Elite Gen 5 örgjörva og keyrir Xiaomi HyperOS 3, sem tryggir hraða og lipra notkun hvort sem þú ert að taka myndir, spila leiki, horfa á efni eða vinna á ferðinni. 6,3" AMOLED skjárinn er með 2656 × 1220 upplausn, allt að 120 Hz endurnýjunartíðni og allt að 3500 nita birtustig, sem skilar skýrri og bjartari mynd við allar aðstæður.
Vert er að minnast á að vinnsluhraðinn er frábær með 12GB vinnsluminni
Myndavélakerfið er þróað í samstarfi við Leica og samanstendur af þremur 50 MP myndavélum. Þar er að finna aðalmyndavél með ljóssterku linsuopi og OIS myndstöðugleika, aðdráttarmyndavél með OIS og macro stuðningi, auk ofurgleiðhornsmyndavélar sem hentar vel fyrir landslagsmyndir, hópmyndir og skapandi sjónarhorn.
Helstu eiginleikar:
6,3" AMOLED skjár með allt að 120 Hz endurnýjunartíðni
Snapdragon 8 Elite Gen 5 örgjörvi fyrir öfluga og hraða notkun
12GB vinnsluminni
Leica þrefalt 50 MP myndavélakerfi
50 MP sjálfumyndavél með PDAF sjálfvirkum fókus
6330 mAh rafhlaða fyrir langa rafhlöðuendingu
Allt að 100 W hraðhleðsla
5G, Wi-Fi 7, Bluetooth 6.0 og NFC
IP68 vörn gegn vatni og ryki
USB 3.2 Gen 1 tengi og ultrasonic fingrafaralesari í skjá
Xiaomi 17 5G er frábær kostur fyrir þá sem vilja öflugan snjallsíma með toppafköstum, vandaða myndavél og langa rafhlöðuendingu í þægilegri stærð. Hann hentar jafnt fyrir vinnu, afþreyingu og daglega notkun.
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



