Áskriftarskilmálar fyrir sjónvarpsstöðvar Sýnar
Skilmálar þessir voru gefnir út 19. maí 2020 og taka gildi 19. júní 2020.
1. Áskrift veitir áskrifanda aðgang að þeim sjónvarpsstöðvum og/eða áskriftarveitum sem áskrifandi hefur valið að greiða fyrir. 2. Áskriftin er einungis til heimilis- og einkanota. Óheimilt er að dreifa áskriftinni með einhverjum þeim hætti að hún nýtist á fleiri stöðum en á skráðum notkunarstað áskriftarbúnaðarins, t.d. á milli heimila, vinnustaða o.s.frv. Eins er áskrifanda óheimilt að taka upp efni úr dagskrá nema til einkaafnota á skráðum notkunarstað áskriftarbúnaðarins. 3. Uppsögn ber að tilkynna fyrir 26. hvers mánaðar og tekur hún þá gildi frá og með næstu mánaðarmótum frá móttöku. Ef uppsögn berst eftir þann tíma mánaðarins þá tekur hún þá gildi frá og með þarnæstu mánaðarmótum frá móttöku. 4. Kjósi áskrifandi að tilkynna uppsögn ber honum að tilkynna allar slíkar breytingar til Sýnar í síma 1414 eða með öðrum skýrum hætti. Öll ábyrgð á að slíkar tilkynningar berist til Sýnar hf. á réttan hátt og á réttum tíma liggur hjá áskrifanda. Ítrekað er að tilkynningum skal beint til Sýn hf. en ekki til ótengdra dreifingaraðila eða annarra. 5. Óskum um breytingar á áskrift eða tilkynningu um uppsögn skal beint til Sýn hf. í síma 1414 eða með öðrum skýrum hætti, óháð því hvort annar aðili hafi látið áskrifanda í té búnað s.s. myndlykil. Að sama skapi ber að tilkynna Sýn hf. um breytingu á dreifiaðila. Öll ábyrgð á að slíkar tilkynningar berist til Sýn hf. á réttan hátt og á réttum tíma liggur hjá áskrifanda. 6. Viðskiptavinir geta einvörðungu valið sér einn dreifiaðila. 7. Áskriftargjald hvers mánaðar ber áskrifanda að greiða fyrir fram samkvæmt þeim verðskráreglum sem eru í gildi á hverjum tíma hjá Sýn hf.. Verðskrá getur tekið breytingum á samningstíma. Eindagi reikninga er 4. hvers mánaðar og gjalddagi reikninga 5 - 6 dögum áður (getur breyst ef um frídaga eða helgi er að ræða). Sé reikningur greiddur eftir eindaga greiðir áskrifandi dráttarvexti frá gjalddaga til greiðsludags skv. III. kafla laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001. 8. Ef áskrifandi hefur athugasemdir við reikninga verður hann að láta vita um þær án tafar og eigi síðar en á gjalddaga/eindaga. Að öðrum kosti telst reikningurinn samþykktur. 9. Ef viðskiptavinur óskar eftir því að reikningur sé skuldfærður beint á greiðslukort er ekki gefinn út greiðsluseðill og sendir Sýn hf. þá kröfu rafrænt í heimabanka viðskiptavinar samkvæmt verðskrá Sýn hf.. Óski áskrifandi eftir því að fá sendan greiðsluseðil skal hann fara fram á það með skýrum hætti og velja þá jafnframt hvort óskað sé eftir rafrænum eða útprentuðum greiðsluseðli. Hafa ber í huga að í þeim tilvikum er innheimt lágmarks seðilgjald og vakin er athygli á því að útprentaður greiðsluseðill er dýrari. Ef um beingreiðslur er að ræða gerir áskrifandi ekki samkomulag við Sýn hf. heldur við viðkomandi bankastofnun. Ef um boðgreiðslur er að ræða skuldfærist áskriftargjald mánaðarlega á kreditkort sem áskrifandi gefur upp við upphaf áskriftar. Sýn hf. ber því ekki ábyrgð á samkomulagi áskrifanda við bankastofnanir um boðgreiðslur áskriftargjalda og hvetur áskrifanda til að fylgjast vel með færslum á reikning. 10. Stöð 2 (Sýn hf.) virðir almenna skilmála um varðveislu kortanúmera frá færsluhirðingafyrirtækjum/kortaútgefendum en að öðru leyti gilda ákvæði persónuverndarstefnu Sýn hf. um meðferð persónuupplýsinga sem telst órjúfanlegur hluti skilmála þessara. 11. Sýn hf. áskilur sér allan rétt til að breyta fyrirvaralaust auglýstri dagskrá miðla sinna og fjölda þeirra rása sem dagskráin er send út á hverju sinni og einnig allan rétt til að breyta fyrirvaralaust samsetningum og fjölda stöðva í áskriftarpakka. 12. Áskrifandi á kost á að streyma myndefni í gegnum app félagsins eða gegnum vefsjónvarp félagsins. Sýn hf. ábyrgist ekki útsendinga og móttökuskilyrði appsins eða vefsjónvarps. Sýn hf. ábyrgist ekki að áskrifandi hafi alltaf jafnan aðgang að sjónvarpsþjónustu appsins. Ófyrirsjáanlegir atburðir geta leitt til þess að notandi missi aðgang að þjónustunni. Sýn hf. ber ekki ábyrgð á því þótt samband rofni um stund en mun þó leitast við að koma sambandi á að nýju án ástæðulauss dráttar. Sýn hf. ber ekki ábyrgð á því verði rof á tengingu vegna skemmdarverka eða línurofs á heimili áskrifanda eða hjá þriðja aðila. Hverri áskrift að appi félagsins fylgir einn samtímastraumur en hægt er að setja upp aðgang í fleiri viðtæki sem styðja við appið innan hvers heimilis. Stöð 2 áskilur sér rétt að takmarka fjölda viðtækja í hverri áskrift. Áskrifandi ábyrgist að öll tækin séu í eigu áskrifanda eða nánustu fjölskyldumeðlima sem búa innan sama heimilis. Sýn hf. ábyrgist ekki að notandi hafi alltaf jafnan aðgang að sjónvarpsþjónustu Sýnar. 13. Allur réttur á kvikmyndum, ljósmyndum, grafík og öðru höfundarréttarvörðu efni er keypt undir samningi af Sýn og tilheyrir samstarfsaðilum félagsins, efniseigendunum. Efnið sem viðskiptavinir geta nálgast gegnum sjónvarpsþjónustur Sýnar, þar með talið höfundarréttarvarið efni innan efnisins, er eign efniseiganda og samstarfsaðila þeirra og er varið af höfundarréttarlögum Bandaríkjanna sem og annarra höfundarréttarsamtaka víðs vegar um heim. Sýn, efniseigendur og samstarfsaðilar efniseigenda veita viðskiptavinum Sýnar engin réttindi gagnvart því efni sem þeir kunna að eiga viðskipti með við Sýn. 14. Stöð 2 (Sýn hf.) er heimilt að bjóða upp á samninga þar sem áskrifandi skuldbindur sig samkvæmt samningi beggja aðila. Ef áskrifandi segir upp slíkum samningi á samningstíma áskilur Stöð 2 (Sýn hf.) sér rétt til að krefja áskrifanda um þau mánaðargjöld sem ógreidd eru af samningstímanum. 15. Brjóti áskrifandi gegn áskriftarskilmálum þessum, til dæmis, en takmarkast ekki við, að reynt sé að komast hjá gjaldtöku á óheimilan hátt eða koma gjaldskyldu yfir á óskyldan eða ógjaldfæran aðila, er Stöð 2 (Sýn hf.) heimilt, án fyrirvara, að loka á áskrift og krefjast greiðslu sem Stöð 2 (Sýn hf.) áætlar að af sanngirni bæti fyrir brot áskrifanda. Þá kann Sýn hf. að leggja fram kæru til lögreglu vegna slíkrar háttsemi. 16. Sýn hf. hefur heimild til þess að breyta áskriftarskilmálum. Allar breytingar á skilmálum skulu tilkynntar með skýrum hætti með a.m.k. mánaðar fyrirvara á heimasíðu Sýn hf. og/eða á útgefnum reikningum. Þar skal kynnt í hverju breytingar felast og eftir atvikum veittar upplýsingar um rétt áskrifanda til þess að segja upp gildandi samningi vegna breytinganna. 17. Sýn hf. áskilur sér rétt að vísa áskrifanda úr viðskiptum sýni hann ítrekaða ósæmilega hegðun í garð starfsfólks. Með ósæmilegri hegðun er átt við t.d. (en ekki eingöngu) ógnanir af einhverjum toga eða hótanir af einhverjum toga. Einnig er heimilt að vísa áskrifanda úr viðskiptum af öðrum ástæðum, svo sem vegna verulegra vanskila. 18. Stöð 2 (Sýn hf.) áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum vegna nýrra áskriftarleiða, án þess að tilkynna öllum áskrifendum um þær breytingar enda hafa þær breytingar ekki áhrif á gildandi áskriftir. 19. Rísi upp ágreiningur um túlkun og skýringu á skilmálum þessum skal leitast við að ná sáttum með heiðarleika og sanngirni að leiðarljósi. Getur áskrifandi sent Sýn hf. kvörtun og eftir atvikum rekið mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
## Eldri skilmálar *Skilmálar þessir falla úr gildi 19. Júní 2020 * 1. Áskrift veitir áskrifanda aðgang að þeim sjónvarpsstöðvum og/eða áskriftarveitum sem áskrifandi hefur valið að greiða fyrir. 2. Áskriftin er einungis til heimils- og einkanota. Óheimilt er að dreifa áskriftinni með einhverjum þeim hætti að hún nýtist á fleiri stöðum en á skráðum notkunarstað áskriftarbúnaðarins, sbr. 12.gr. skilmála þessara, t.d. á milli heimila, vinnustaða o.s.frv.. Eins er áskrifanda óheimilt að taka upp efni úr dagskrá nema til einkaafnota á skráðum notkunarstað áskriftarbúnaðarins. 3. Almennur áskriftarsamningur framlengist sjálfkrafa um einn mánuð í senn uns honum er sagt upp. Uppsögn ber að tilkynna fyrir 1. hvers mánaðar og tekur hún þá gildi frá og með næstu mánaðamótum frá móttöku. Kjósi áskrifandi að tilkynna uppsögn ber honum að tilkynna allar slíkar breytingar til Sýnar (Vodafone eða Stöð 2), í síma 1817 eða 1414 eða með öðrum skýrum hætti. Öll ábyrgð á að slíkar tilkynningar berist Sýnar á réttan hátt og á réttum tíma liggur hjá áskrifanda. Ítrekað er tilkynningum skal beint til Sýnar en ekki til ótengdra dreifingaraðila eða annarra, sbr. 9. gr. skilmálanna. 4. Áskriftargjald hvers mánaðar ber áskrifanda að greiða fyrirfram samkvæmt þeim verðskrárreglum sem eru í gildi á hverjum tíma hjá Sýn. Verðskrá getur tekið breytingum á samningstíma í samræmi við 13. gr. skilmálanna. Gjalddagi reikninga er 20. hvers mánaðar. Eindagi reikninga breytilegur. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga. 5. Allar athugasemdir við útgefna reikninga og greiðsluseðla skulu gerðar án tafar og eigi síðar en á eindaga reiknings, ella telst reikningur og/eða greiðsluseðill samþykktur og verður þá ekki endurskoðaður sem slíkur nema að atvik réttlæti slíkt með ótvíræðum hætti. 6. Ef viðskiptavinur óskar eftir því að reikningur sé skuldfærður beint á greiðslukort er ekki gefinn út greiðsluseðill og sendir Sýn þá kröfu rafrænt í heimabanka viðskiptavinar skv. verðskrá.. Óski áskrifandi eftir því að fá sendan greiðsluseðil skal hann fara fram á það með skýrum hætti og velja þá jafnframt hvort óskað sé eftir rafrænum eða bréflegum greiðsluseðli. Hafa ber í huga að í þeim tilvikum er innheimt lágmarks seðilgjald og vakin er athygli á því að bréflegur greiðsluseðill er dýrari. Ef um beingreiðslur er að ræða gerir áskrifandi ekki samkomulag við Sýn heldur við viðkomandi bankastofnun. Ef um boðgreiðslur er að ræða skuldfærist áskriftargjald mánaðarlega á kreditkort sem áskrifandi gefur upp upphaf áskriftar. Sýn ber því ekki ábyrgð á samkomulagi áskrifanda við bankastofnanir um boðgreiðslur áskriftargjalda og hvetur áskrifanda til að fylgjast vel með færslum á reikning, sérstaklega eftir að áskrifandi hefur sagt upp áskrift sinni hjá Sýn. Sýn virðir almenna skilmála um varðveislu kortanúmera frá færsluhirðingafyrirtækjum/kortaútgefendum en að öðru leyti gilda ákvæði persónuverndarstefnu Sýnar um meðferð persónuupplýsinga. 7. Sýn áskilur sér allan rétt til að breyta fyrirvaralaust auglýstri dagskrá miðla sinna og fjölda þeirra rása sem dagskráin er send út á hverju sinni og einnig allan rétt til að breyta fyrirvaralaust samsetningum og fjölda stöðva í hverjum áskriftarpakka, sbr. 13.gr. skilmálanna. 8. Óskum um breytingar á áskrift eða tilkynningu um uppsögn skal beint til Sýnar, óháð því hvort annar aðili hafi látið áskrifanda í té búnað s.s. myndlykil. Að sama skapi ber að tilkynna Sýn um breytingu á dreifiaðila. 9. Aukaáskriftargjald á aukamyndlykli er skv. verðskrá hverju sinni og greiðist sú upphæð til Sýnar. Með aukaáskriftargjaldi er átt við þegar áskrift speglast á aukalykil, allar áskriftarstöðvar nema grunnáskrift. Aðal- og aukamyndlyklar verða báðir að vera staðsettir á heimili áskrifanda/greiðanda. 10. Áskrifendum gefst kostur á að streyma myndefni frá sjónvarpsstöðvum Sýnar til persónulegra nota í gegnum sjónvarpsapp Sýnar. Sýn ábyrgist ekki útsendinga og móttökuskilyrði appsins. Sýn ábyrgist ekki að notandi hafi alltaf jafnan aðgang að sjónvarpsþjónustu Sýnar. Ófyrirsjáanlegir atburðir geta leitt til þess að notandi missi aðgang að þjónustunni. Sýn ber ekki ábyrgð á því þótt samband rofni um stund en mun þó leitast við að koma sambandi á að nýju án ástæðulauss dráttar. Sýn ber ekki ábyrgð á því verði rof á tengingu vegna skemmdarverka eða línurofs í híbýlum viðskiptavinar eða hjá þriðja aðila. Hverri áskrift að sjónvarpsappinu fylgir einn samtímastraumur en hægt er að setja upp aðgang í allt að fimm viðtæki (tölvur, spjaldtölvur, sjónvörp, síma) innan hvers heimilis. Áskrifandi ábyrgist að öll tækin séu í eigu áskrifanda eða nánustu fjölskyldumeðlima sem búa innan sama heimilis. 11. Brjóti áskrifandi gegn áskriftarskilmálum þessum, til dæmis, en takmarkast ekki við, að reynt sé að komast hjá gjaldtöku á óheimilan hátt eða koma gjaldskyldu yfir á óskyldan eða ógjaldfæran aðila, er Sýn heimilt, án fyrirvara, að loka á áskrift og krefjast greiðslu sem Sýn áætlar að af sanngirni bæti fyrir brot áskrifanda. Þá kann Sýn að leggja fram kæru til lögreglu vegna slíkrar háttsemi. 12. Sýn hefur heimild til þess að breyta áskriftarskilmálum.Allar breytingar á skilmálum skulu tilkynntar með skýrum hætti með a.m.k. mánaðar fyrirvara á heimasíðu Sýnar og/eða á útgefnum reikningum. Þar skal kynnt í hverju breytingarnar felast og eftir atvikum veittar upplýsingar um rétt áskrifanda til þess að segja upp gildandi áskriftarsamningi vegna breytinganna. 13. Rísi ágreiningur um túlkun og skýringu á skilmálum þessum skal leitast við að ná sáttum með heiðarleika og sanngirni að leiðarljósi, en annars má reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Skilmálar sjónvarpsdreifingar
Áskriftarskilmálar um sjónvarpsdreifingu Sýnar:
1. Eftirfarandi skilmálar gilda fyrir aðgang að sjónvarpsþjónustu Sýnar. Sjónvarpsþjónusta Vodafone (Sýn hf.) veitir áskrifanda aðgang að sjónvarpsdreifikerfi sem og aðgang að annarri sjónvarpsþjónustu félagsins, t.d. leiguna og áskriftarstöðvum. Sá sem óskar eftir að gerast áskrifandi að sjónvarpsþjónustu Sýnar (Sýn hf.) skuldbindur sig við undirritun eða staðfestingu samnings með rafrænum hætti til að hlíta skilmálum þessum sem og þeim kjörum sem um þjónustuna gilda. Við undirritun eða staðfestingu samnings er kominn á bindandi samningur milli aðila. Þar sem skilmálum þessum sleppir gilda almennir skilmálar um fjarskiptaþjónustu Vodafone (Sýn hf.). Stangist ákvæði þeirra skilmála og þessara á skulu ákvæði skilmála þessa ganga framar.
2. Skilmálar þessir gilda fyrir alla viðskiptavini Sýnar (Sýn hf.) sem óskað hafa eftir aðgangi að sjónvarpsþjónustu Vodafone (Sýn hf.) (áskrifanda) og Vodafone (Sýn hf.) hefur veitt aðgang að með afhendingu búnaðar, sem og þá sem hana nýta (notanda). Aðgangur að sjónvarpsþjónustu Sýnar (Sýn hf.) gerir viðskiptavini kleift að nálgast sjónvarpsefni sem efnisveitur bjóða. Framboð efnis er háð svæðum og samningi við efnisveitur. Sýn ber enga ábyrgð á innihaldi þess efnis sem veittur er aðgangur að í sjónvarpsþjónustu Sýnar (Sýn hf.).
3. Þjónustan er reglulega uppfærð og breytt á hverjum tíma þar sem nýju myndefni er reglulega bætt við og annað myndefni tekið úr notkun. Sýn áskilur sér rétt til þess að breyta því myndefni sem aðgengilegt er hverju sinni án tilkynningar, þ.m.t. bæta við nýju myndefni, fjarlægja myndefni eða breyta viðmóti eftir því sem Sýn telur rétt á hverjum tíma, sem og vegna samninga við rétthafa.
4. Allur réttur á kvikmyndum, ljósmyndum, grafík og öðru höfundarréttarvörðu efni er keypt undir samningi af Sýn og tilheyrir samstarfsaðilum félagsins, efniseigendunum. Efnið sem viðskiptavinir geta nálgast gegnum sjónvarpsþjónustur Sýnar, þar með talið höfundarréttarvarið efni innan efnisins, er eign efniseiganda og samstarfsaðila þeirra og er varið af höfundarréttarlögum Bandaríkjanna sem og annarra höfundarréttarsamtaka víðs vegar um heim. Sýn, efniseigendur og samstarfsaðilar efniseigenda veita viðskiptavinum Sýnar engin réttindi gagnvart því efni sem þeir kunna að eiga viðskipti með við Sýn.
5. Áskrifandi sem kaupir myndefni í gegnum viðmót sjónvarpsþjónustu Sýnar hefur einvörðungu kost á að niðurhala því efni, sé það mögulegt, á Íslandi.
6. Sýn býður áskrifanda að leigja búnað (t.d. myndlykil eða aðgangskort (CAM kort) til að nota sjónvarpsþjónustu Sýnar gegn greiðslu samkvæmt gildandi verðskrá Sýnar hverju sinni. Áskrifanda er óheimilt að; gera eða láta gera nokkrar breytingar á búnaðinum (óheimil meðferð myndlykla er refsiverð skv. 28.gr. og 33.gr. útvarpslaga nr. 53/2000), leyfa öðrum að nota búnaðinn með því að selja, leigja, gefa eða láta hann af hendi með öðrum hætti, tengja búnaðinn við sjónvarpstæki utan skráðs notkunarstaðar hans (þó er áskrifanda heimilt að nota búnaðinn á tímabundnum dvalarstað, svo sem í sumarbústað, háð dreifileið) eða taka upp efni úr dagskrá einstakra miðla nema til einkaafnota á skráðum notkunarstað áskriftarbúnaðarins. Áskrifandi getur óskað eftir að fá til notkunar aukamyndlykil á sama stað og sá myndlykill er sem hann hefur fyrir, bundið sömu skilyrðum og koma fram hér á undan. Sýn ábyrgist ekki að notandi hafi alltaf jafnan aðgang að sjónvarpsþjónustu Sýnar.
7. Áskrifandi á kost á að streyma myndefni í gegnum app félagsins eða gegnum vefsjónvarp félagsins. Sýn ábyrgist ekki útsendinga og móttökuskilyrði appsins eða vefsjónvarps. Sýn ábyrgist ekki að áskrifandi hafi alltaf jafnan aðgang að sjónvarpsþjónustu appsins. Ófyrirsjáanlegir atburðir geta leitt til þess að notandi missi aðgang að þjónustunni. Sýn ber ekki ábyrgð á því þótt samband rofni um stund en mun þó leitast við að koma sambandi á að nýju án ástæðulauss dráttar. Sýn ber ekki ábyrgð á því verði rof á tengingu vegna skemmdarverka eða línurofs á heimili áskrifanda eða hjá þriðja aðila. Hverri áskrift að appi félagsins fylgir einn samtímastraumur en hægt er að setja upp aðgang í fleiri viðtæki sem styðja við appið innan hvers heimilis. Sýn áskilur sér rétt að takmarka fjölda viðtækja í hverri áskrift. Áskrifandi ábyrgist að öll tækin séu í eigu áskrifanda eða nánustu fjölskyldumeðlima sem búa innan sama heimilis. Sýn ábyrgist ekki að notandi hafi alltaf jafnan aðgang að sjónvarpsþjónustu Sýnar.
8. Sýn er eigandi búnaðarins og ber áskrifanda að gæta hans og fara vel með hann. Áskrifandi ber ábyrgð á öllu tjóni á þeim búnaði sem Sýn lætur honum í té. Viðskiptavinur skal greiða allan kostnað vegna viðgerða á búnaði sem stafar af rangri eða slæmri meðferð á honum í samræmi við reikning frá Sýn þar um. Eyðileggist eða glatist (hvort sem honum er stolið eða hann glatist með öðrum hætti) áskriftarbúnaður í vörslu áskrifanda ber honum að greiða kostnaðarverð nýs búnaðar samkvæmt gildandi verðskrá Sýnar. Greiðsla vegna ónýts eða glataðs búnaðar rýrir ekki eignarrétt Sýnar að búnaðinum. Sé búnaðinum stolið ber áskrifanda að tilkynna það tafarlaust til Sýnar og lögreglu.
9. Starfsmenn Sýnar hafa rétt á að fá búnað áskrifanda afhentan til skoðunar og yfirferðar. Sýn kann að vilja skipta út myndlykli sínum hjá áskrifanda eftir því sem að tækniþróun eða aðrar ástæður gefa tilefni til.
10. Sýn ber ábyrgð á réttri virkni áskriftarbúnaðar. Áskrifandi skal þó á sinn kostnað koma áskriftarbúnaði sem þarfnast viðgerðar til Sýnar. Innanhússlagnir eru á ábyrgð áskrifanda. Sýn ber einungis ábyrgð á gæðum myndmerkis í símainntak áskrifanda. Sýn ber ekki ábyrgð á því, þótt útsending rofni um stund en mun í slíkum tilvikum ávallt leitast við að koma útsendingu í lag á ný. Sýn ábyrgist ekki tjón sem rekja má til sambandsleysis, rofs á útsendingu eða annarra truflana sem kunna verða á sjónvarpsdreifingu hvorki að hálfu félagsins né að hálfu þriðja aðila.
11. Leigu búnaðar, áskrift og seðilgjald hvers mánaðar, hvort sem er fyrir myndlykil eða aukamyndlykil, ber áskrifanda að greiða samkvæmt gildandi verðskrá Sýnar hverju sinni. Uppsögn á myndlyklagjaldi, leigu á búnaði, er einungis framkvæmd með skilum á búnaði. Greiðsla á áskriftargjaldi eftir móttöku búnaðar á heimili áskrifanda jafngildir undirskrift áskriftarsamnings. Við gerð nýs áskriftarsamnings fellur úr gildi eldri samningur um sama áskriftarbúnað sé hann til staðar. Sýn er heimilt að bjóða upp á áskriftarsamninga þar sem áskrifandi skuldbindur sig í umsaminn tíma. Samningurinn er óuppsegjanlegur innan samningstímabilsins. Greidd áskrift er ekki afturkræf. Hætti áskrifandi að greiða áskrift eða leigu á búnaði er Sýn heimilt að stöðva útsendingar á sjónvarpsþjónustu til áskrifanda. Áskrifandi skal greiða áskriftargjald til Sýnar, samkvæmt gildandi verðskrá, auk kostnaðar sem kann að hljótast af innheimtu þess, þar til búnaði hefur verið skilað.
12. Brjóti áskrifandi gegn áskriftarskilmálum þessum er Sýn heimilt, án fyrirvara, að stöðva útsendingu á sjónvarpsþjónustu til hans og krefjast tafarlausra skila á áskriftarbúnaðinum og greiðslu skaðabóta. Mál út af samningi þessum má reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
13. Sjónvarpsþjónusta Sýnar er eingöngu til einkanota en ekki til opinberrar dreifingar. Opinber dreifing telst t.d. til notkunar á hótelum, hárgreiðslustofum, líkamsræktarstöðvum o.s.frv. Gildir ofangreint bæði um leigur á kvikmyndum, kaup á kvikmyndum, sem og dreifingu á innlendum og erlendum stöðvum. Séu skilmálar þessir brotnir áskilur Sýn sér rétt til að stöðva þjónustuna án frekari viðvarana.
14. Mögulegt er að kaupa viðbótaráskriftir og stakt myndefni ásamt því að leigja stakt myndefni í gegnum viðmót sjónvarpsþjónustu Sýnar. Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að gera viðeigandi ráðstafanir í viðmóti til þess að tryggja að aðrir notendur þjónustunnar eða óviðkomandi kaupi ekki eða leigi ekki myndefni án heimildar áskrifanda, s.s. með því að setja lykilnúmer (PIN) sem skilyrði fyrir kaupum á áskrift eða leigu myndefnis. Viðskiptavin er skylt að greiða fyrir allar áskriftir eða myndefni sem hafa verið leigðar og/eða keyptar í gegnum viðmót þjónustunnar.
15. Gæði og virkni þjónustunnar getur verið mismunandi eftir því viðtæki sem notandi nýtir til áhorfs, og hafa margir mismunandi þættir áhrif á þjónustuna, s.s. staðsetning, aðgengileg bandvídd og/eða hraði internettengingar sem áskrifandi notar til þess að nálgast þjónustuna. Sýn leitast við að afhenda þjónustuna í samræmi við gæði tengingar hverju sinni.
Skilmálar þessir gilda frá og með 1. apríl 2022 og þar til nýir taka gildi.
Skilmálar
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



