syn_linuleg_logo_m_bg-Sýn línuleg logo með bakgrunni-img

Safn Sýnar

Hér má finna upplýsingar um og verð þjónustu á safni Sýnar.

Safnið gefur sér eina viku frá því að beiðnin berst safnstjóra þar til efnið er afhent. Stærri pantanir geta tekið lengri tíma. Hægt er að óska eftir flýtimeðferð og fá efni afhent innan sólarhrings. Rukkað samkvæmt verðskrá. Allt efni er afhent rafrænt.

syn_linuleg_logo_m_bg-Sýn línuleg logo með bakgrunni-img
Verðskrá
Þjónusta
Verð
Umsýslugjald (klipping og önnur minni vinnsla innifalin)
4.500 kr.
Umsýslugjald (flýtimeðferð)
9.000 kr.
Umsýslugjald fyrir höfundaréttavarið efni
7.000 kr.
Spóla yfir á stafrænt form
4.900 kr.
Styttri þættir (allt að 30 mínútna langir)
2.500 kr.
Lengri þættir (lengri en 30 mínútur)
3.500 kr.
Vegna efnis til framleiðslu
Þjónusta
Verð
Aðstoð sérfræðings við gagnaöflun
8.000 kr./klst.
Sýningarréttur á efni sýnt innanlands til 5 ára *
2.000kr./pr sek.
Efni til sýningar á vef eða skemmtunum fyrirtækja/samtaka
32.000 kr.

*Magnafsláttur

  • 10% ein mínúta

  • 20% tvær mínútur

  • 30% þrjár mínútur og lengra

  • 40% 4 mínútur eða lengra

  • 50% 5 mínútur eða lengra

Öll verð eru án vsk.

Ef leikmenn óska eftir leikjum sem þeir hafa verið í og Sýn sýnt, þá þarf sú beiðni að fara í gegnum þjálfara þeirra sem fær afrit hjá KSÍ.

Efni sem notað er vegna málaferla þurfa að fara í gegnum lögfræðistofu skjólstæðings.

Efni sem er aðgengilegt inni á miðlum Sýnar er ekki afhent almenningi til eignar.

Ef óskað er eftir efni úr safni, sem Sýn hefur ekki einkarétt á, þarf að útvega skriflegt leyfi rétthafa og senda í tölvupósti á safn@syn.is. Þar þarf að koma fram:

  • Nafn þess sem leyfið nær til.

  • Nafn, staða og fyrirtæki þess sem gefur út leyfið.

  • Nákvæm lýsing á til hvers leyfið nær.

  • Gildistími leyfis.

Fylgdu okkur

Það er betra að vera með Sýn

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.

Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528

certificatecertificatecertificatecertificatecertificate