
Hoppaðu með okkur inn í framtíðina
Ert þú klár í 3G lokun?
Nú er komið að því að slökkt verður á allri 3G þjónustu á Íslandi. Sýn, ásamt öðrum fjarskiptafyrirtækjum, mun slökkva á síðustu 3G sendunum og 4G/5G taka alfarið við. Við hlökkum til að taka stökkið með ykkur inn í framtíðina með hraðari, stöðugri og betri þjónustu fyrir viðskiptavini.
Síðustu mánuði höfum við átt í samskiptum við viðskiptavini sem þurfa að gera ráðstafanir, hvort sem það er að skipta um símtæki eða uppfæra hugbúnað. Við hvetjum viðskiptavini okkar að hringja í númerið 620-0300 til að kanna hvort símtæki á heimilum séu stillt á 4G/5G. Ákveðin símtæki munu ekki geta hringt neyðarsímtöl í 112 þegar slökkt verður á 3G. Það er því brýnt öryggisatriði að eigendur þeirra tækja sem fengið hafa SMS, um að nauðsynlegt sé að uppfæra eða skipta út tæki sínu, bregðist við sem fyrst. Í tengslum við þessa breytingu hefur verið útbúinn sjálfvirkur símsvari 1280 þar sem notendur geta athugað hvort símtækin þeirra geti áfram hringt neyðarsímtöl eftir að slökkt hefur verið á 3G-sendum. Eigendur eldri símtækja og/eða símtækja sem keypt voru erlendis eru sérstaklega hvattir til að hringja í 1280 til að athuga hvort tækið þeirra styðji við nýjustu tækni. Það er mjög brýnt að fólk hringi alls ekki í 112 til að prófa samband, það getur skapað álag og hindrað að neyðarsímtöl nái í gegn.



Er eitthvað sem ég þarf að gera?
Ef þú ert með símtæki, krakkaúr, öryggistæki, veghlið eða aðra þjónustu sem styður eingöngu 3G mælum við með að skipta þeim út til að koma í veg fyrir sambandsleysi. Engar áhyggjur, 4G VoLTE og 5G mun tryggja að allt virki.
Til að kanna hvort þitt símtæki styðji eingöngu 3G mælum við með að hringja í númerið 620-0300 eða fara yfir stillingarnar í símanum og athuga sérstaklega hvort tækið styðji 4G VoLTE eða 5G. Hér má finna leiðbeiningar um hvernig þú ferð yfir stillingarnar.
Ef þig vantar aðstoð, þá getur þú að sjálfsögðu heyrt í okkur og við aðstoðum þig.


Þjónustusvæði
Við tryggjum háhraða samband um allt land og úti á miðum.
Í dag höfum við sett upp 180 senda um landið og hlökkum til að halda 5G uppbygginingunni áfram.Með aukinni 5G útbreiðslu getum við boðið upp á sérsniðnar lausnir og tryggt enn meira öryggi, áreiðanleika og skilvirkni á ýmsum sviðum samfélagsins.

Ertu á leið til útlanda?
Fjarskiptafélög erlendis hafa einnig hafið vinnuna við lokun 2G og 3G og því gætir þú upplifað sambandsleysi í útlöndum ef tækin þín styðja ekki 4G eða 5G.

Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



