AirPods Max Midnight Pure Back Screen USEN 61239c32-35fc-4294-bfc1-eab595245cbd 600x500

AirPods Max 2

Vörunr. MHWK4ZM/A

Litur

Verð:109.990 kr.

Birgðastaða

Uppselt

Helstu upplýsingar

Apple AirPods Max 2 – Þegar hljóðið á að vera fullkomið

AirPods Max 2 eru fyrir þá sem neita að sætta sig við meðalmennsku í hljóðupplifun. Apple H2 flagan, vandað efni og framúrstefnuleg tækni sameinast í heyrnartólum sem skila hlustun á allt öðru stigi, hvort sem þú ert á ferð, heima eða á vinnustaðnum.

Hljóð sem umlykur þig

H2 flagan vinnur óslitið í bakgrunni og aðlagar hljóminn að eyrunum þínum með Adaptive EQ. Virk hljóðeinangrun með níu hljóðnemum, þar af átta sérhæfðir í einangrun, loka á umhverfishljóð og láta tónlistina fylla rýmið. Persónusniðið rýmishljóð bætir síðan dýpt og vídd við upplifunina, hvort sem þú ert að hlusta á plötu, horfa á kvikmynd eða taka símtal.

Þarftu að heyra hvað er að gerast í kringum þig? Einn smellur á hnapp og þú heyrir aftur í umhverfinu.

Endingargóð hönnun

Skeljarnar eru úr léttu og endingargóðu áli, ramminn úr ryðfríu stáli vafinn mjúkum efnum. Höfuðbandið dreifir þyngdinni jafnt og minnkar álag við langa notkun. Tækið er stillanlegt þannig að þau sitji þægilega á hausnum

Digital Crown, nákvæm stjórn

Stilltu hljóðstyrk, skiptu um lag, svaraðu símtölum eða talaðu við Siri, allt með þumalfingurinn á Digital Crown hjólinu.

Auðveld tenging

Leggðu AirPods Max við hliðina á iPhone eða iPad og þau tengjast samstundis. Skipting á milli tónlistar og símtala er óaðfinnanleg.

Helstu eiginleikar:

  • Apple H2 flaga með virkri hljóðeinangrun (ANC)

  • 9 hljóðnemar – 8 fyrir einangrun, 3 fyrir símtöl

  • Adaptive EQ og persónusniðið rýmishljóð

  • Allt að 20 klst rafhlöðuending með ANC og Spatial Audio

  • 5 mínútna hleðsla gefur 1,5 klst notkun

  • Digital Crown fyrir nákvæma stjórn

  • USB-C hleðslutengill (fylgir með)

  • Mjúkt Smart Case hulstur (fylgir með)

  • Jack-snúra (fylgir ekki með)

Fylgdu okkur

Það er betra að vera með Sýn

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.

Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528

certificatecertificatecertificatecertificatecertificate