Samsung Galaxy S25 Ultra

Samsung Galaxy S25 Ultra

Vörunr. 45085

Geymsluminni

Litur

Verð:249.990 kr.

Birgðastaða

Til á lager

Helstu upplýsingar

Samsung Galaxy S25 Ultra!

AI virknin í þessum síma er skemmtileg viðbót við annars framúrskarandi tæki til að byrja með.

Tæknin gerir þér kleift að tala í rauntíma við annan aðila sem talar allt annað tungumál en þú. AI sér til þess að þið skiljið hvort annað og getur einnig tekið hljóðbút saman í texta þannig að þú eigir uppskrifað.AI hjálpar líka til við myndvinnslu enda er hægt að stroka hluti út úr mynd eftir á eða jafnvel hringa utan um hlut og láta tæknina finna á vefnum með hálp Google.Framtíðin er sannarlega mætt.

Skjár og Rammi

Galaxy S25 Ultra skartar björtum og fallegum 6,9“ skjá. Þú getur horft á bíómynd í símanum, bæði heima og undir berum himni þökk sé björtum skjánum (2600 nits). Hreyfingar í símanum verða einnig mjúkar og þægilegar með allt að 120Hz endurnýjun.Galaxy S25 Ultra er hannaður til að endast. Öflug IP68 vatns- og rykvörn verndar símann fyrir umhverfinu. Framhliðin er úr nýjasta Corning Gorilla Armour 2 glerinu, bakhliðin er úr Corning Gorilla Glass Victus 2 og ramminn er gerður úr ofursterku Titanium áli og saman myndar þetta skel sem þolir meira. Miklu meira.Auk þess leynist penni inni í hlið símans sem gerir þér kleift að sjá rithönd þína breytast í innslegin texta, skerpa á myndum og vinna í alls konar smáatriðum sem eru of fíngerð fyrir fingur.

Örgjörvi Örgjörvinn er hjarta símans. Hann lætur allt virka hratt og örugglega, aðlagar sig eftir notkun og sérstillir sig fyrir leikjaspilun. Hann lengir rafhlöðuendinguna og notast við gervigreind til að fanga fullkomnari ljósmyndir með einum smelli.Snapdragon 8 Elite fyrir Galaxy símana er hraður örgjörvi sem gerir S25 Ultra einn besta leikjasímann á markaðnum í dag með kraftmeiri GPU og gríðarlega skilvirkt kælikerfi sem gefur þér forskot áður en þú byrjar leikinn.

Myndavél Taktu mynd og líttu inn í myndina til að uppgötva fleiri myndir. Upplausnin í flottri 200MP myndavél leyfir þér að prenta myndirnar þínar í ótrúlegum stærðum og gæðum.Fyrir þá sem vilja fullt vald yfir myndatökunni sinni eru ýmsar stillingar og tól sem opnar endalausan heim af valmöguleikum til að stilla myndavélina eftir þínu höfði.Fjórar linsur eru á Galaxy S25 Ultra; 200MP víðlinsa, 50MP Ultra Wide 10MP Telephoto og önnur 50MP Telephoto linsa. Þessi linsusamsetning gerir þér kleift upplifa nýjar hæðir í myndbandagæðum með því að taka upp myndbönd í bæði 4K í 60 FPS og 8K í 30 FPS.

Oft kemur fyrir að bestu augnablikin gerast í rökkrinu: flugeldar, sólsetrið, hápunktur partýsins og hingað til hefur reynst erfitt að fanga þessi augnablik á myndvélina. En með tilkomu Galaxy S25 Ultra með sjálfvirkum ljósnema næst hvert smáatriði í litli ljósi svo þú getur tekið myndirnar áhyggjulaust eins og þú villt hafa þær, jafnvel í rökkrinu með alveg ótrúlegum smáatriðum.

Sjálfu myndavél Þökk sé uppfærðum örgjörvanum og endurbættu stýrierfi eru sjálfurnar þínar flottari en nokkru sinni fyrr. Galaxy S25 Ultra færir þér ótrúlegar sjálfur bæði í ljósi sem og myrkri.Með gervigreind og 3D tækni sem skynjar dýpt við myndatökuna og setur þig í fyrsta sætið verður bakgrunnurinn verður óskýr og andlit þitt birtist í fullkomnum fókus með fallegri lýsingu.

Rafhlaða Rafhlaðan er ekki bara stór og kraftmikil (5000 mAh) heldur er hún einnig bráðsnjöll. Með því að læra inn á og aðlaga sig eftir notkun þinni sparar hún sig og endist lengur á stakri hleðslu. Galaxy S25 Ultra styður einnig við hraðhleðslu sem gerir þér kleift að hlaða símann í 50% á 30 mínútum.

Athugið að hleðslukubbur fylgir ekki með símanum.

Það er betra að vera með Sýn

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.

Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528

certificatecertificatecertificatecertificate