kokkar-Kokkar-img

Sjálfbærni

Við leggjum áherslu á sjálfbærni með tilliti til mannauðs, umhverfis og efnahags.

kokkar-Kokkar-img

Jafnrétti

Jafnrétti er liður í starfsmannastefnu Sýnar og er áhersla lögð á að allt starfsfólk sé metið að verðleikum og njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum. Starfsfólki er ekki mismunað á grundvelli kyns, kynþáttar eða þjóðernis, kynhneigðar, aldurs, trúar, skoðana eða annarra þátta.Hegðun á borð við kynbundið ofbeldi, kynbundna og kynferðislega áreitni er ekki liðin. Starfsfólki af öllum kynjum er gert kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.Sýn hefur markað sér jafnréttisáætlun í samræmi við ákvæði laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Áætlunin á að tryggja jöfn tækifæri og kjör starfsfólks af öllum kynjum og að allir fái notið sín.

Fræðsla

Fræðsla, þjálfun og þekkingarmiðlun er mikilvægur hluti af starfsemi Sýnar. Starfsmenn eiga kost á að afla sér fræðslu og þekkingar sem miðar að því að auka hæfni þeirra í starfi og efla hæfileika þeirra til að takast á við ný og fjölbreytt verkefni í síbreytilegu starfsumhverfi. Unnið er eftir fræðsluáætlun hjá fyrirtækinu ásamt því sem markviss nýliðafræðsla á sér stað í upphafi starfs.

Jafnvægi milli vinnu og einkalífs

Áhersla er lögð á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Við leitumst við að finna þann milliveg sem hámarkar afköst og starfsánægju. Framkvæmdar eru árlegar vinnustaðagreiningar til að sjá hvað gengur vel og hvað má fara betur og eru niðurstöðurnar nýttar til að gera enn betur.

Heilsa starfsmanna

Við stöndum vörð um heilsu, öryggi og vellíðan starfsmanna og eru allir hvattir til að huga að heilsunni með því að hreyfa sig, borða hollan mat, vinna bug á streitu og vera meðvitaðir um mikilvægi andlegrar heilsu.

Það er betra að vera með Sýn

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.

Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528

certificatecertificatecertificatecertificate