
Microsoft 365 með Sýn
Microsoft 365 innheldur Word, Excel, Outlook, Teams og fleiri af einhverjum vinsælustu forritum sem til eru og notuð um allan heim.
Við einföldum málin fyrir þig með því að sjá um rekstur kerfisins. Gögnin eru afrituð og geymd á öruggum stað, aðgengileg hvaðan sem er og þú ert alltaf með nýjustu útgáfu forritanna.
Samvinna starfsfólks og samstarfsaðila verður leikur einn.

Office 365
Áhyggjulaus tölvupóstur
Office 365 inniheldur bestu tölvupóstþjónustu sem völ er á. Aðgengi í öllum þínum tækjum fylgir áskriftinni ásamt stóru pósthólfi. Þannig losnarðu við að reka þinn eigin póstþjón og færð að auki vírus- og ruslpóstvörn fyrir aukið öryggi.
Betri samvinna
Starfsfólkið vinnur á auðveldan hátt saman með aukinni framleiðni með lausnum á borð við Microsoft Teams, Word, Excel og PowerPoint, ásamt snjöllum skýjalausnum og öryggi á heimsmælikvarða.
Öryggið tryggt
Bættu við aukaöryggi og þú færð sömu öryggislausnir og stærstu fyrirtæki heims nota til að vernda gögnin. Þú átt alltaf öryggisafrit af öllum gögnum og sækir þau þegar þú þarft.


Vertu snjallari með gervigreind
Microsoft Copilot er nýtt gervigreindartól sem bætir þá þekkingu sem er til staðar til að auka framleiðni þeirra sem nýta tólið. Copilot fyrir Microsoft 365 vinnur með þekktum forritum eins og Word, Excel, Powerpoint, Outlook, Teams og fleirum. Hægt er að aðlaga tólið að vinnustaðnum þannig hann nýtist öllum til að auka framleiðni og nýsköpun í þeirra starfi.

OneDrive
Öflug gagnageymsla og samvinnusvæði
Með OneDrive færðu aðgang að gríðarstórri 1 TB gagnageymslu í skýinu, sem þýðir að hægt er að nálgast öll gögn hvar og hvenær sem er. Hægt er á einfaldan hátt deila skjölum með samstarfsfólki eða veitt öðrum vinnuaðgang að völdum skjölum. Microsoft Teams býður upp á frábært samvinnusvæði teyma þar sem hægt er að sameina skjöl, dagatöl, verkefnalista, samskipti og svo margt fleira á einum stað.



Hagnýt forrit sem allir þekkja
Mismunandi útfærslur eru í boði, fyrir framlínustarfsmenn sem þurfa eingöngu tölvupóst, starfsmenn sem þurfa samvinnutól eða Excel-snillingana sem þurfa allan pakkann. Einfalt er að blanda saman leiðum, og bæði netaðgangur og fullar útgáfur forritanna eru í boði.
Microsoft NCE leyfisumhverfi
Nýlega kynnti Microsoft nýtt leyfisumhverfi með breytilegum binditíma (NCE) og straumlínulöguðu kaupferli, sem felur í sér breytingu á áskriftarleiðum skýjalausna. Með því gefst viðskiptavinum tækifæri á að raða saman áskriftarleiðum sem henta þeirra rekstri best. Athugið að fyrirtæki geta blandað saman NCE leyfum með ólíkum binditíma eftir því sem hentar.
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



