ddoscloud-Dddosmynd-img
Fyrirtækjalausnir

Öruggara DDoS-varið net

Sýn á Íslandi býður afkastamikla og skalanlega DDoS vörn sem fylgir öllum nettengingum. DDoS eru svokallaðar dreifðar álagsárásir (Distributed Denial of Service) sem skapa hættu fyrir tölvukerfi fyrirtækja og stofnana.

ddoscloud-Dddosmynd-img
ddos maður tafla-ddos maður tafla-img
ddos maður tafla-ddos maður tafla-img

Hvað er DDoS árás?

Algengustu DDoS (e. distributed denial of service) árásir má flokka í tvennt: Magnárásir Beint er á veikleika netþjóna eða vírussýktar vélar með miklu magni pakka frá mörgum stöðum. Þetta veldur svo miklu álagi að nettenging getur dottið út. Afmarkaðar árásir Árásir beinast að ákveðnum þjónustum, t.d. vefþjónum, sem fá slíkt álag að þeir ráða illa við venjulega umferð. Allar nettengingar Sýnar eru með DDoS vörn sem hentar flestum fyrirtækjum.

Network-Network-img

Þrjár

samtengdar

hreinsunarstöðvar

Sýn rekur öflugar DDoS scrubbing miðjur í London, Amsterdam og Frankfurt. Þessar hreinsunarstöðvar vinna saman í samtengdu kerfi sem ver bæði viðskiptavini og sjálfar sig með því að dreifa álagi og greina netumferð áður en hún nær kemst á áfangastaða. Með því að styðja hver við aðra margfaldast afköstin og tryggð er hámarks vernd og rekstraröryggi.

Network-Network-img
Fyrirtæki öryggi 2-Fyrirtæki öryggi 2-img
Fyrirtæki öryggi 2-Fyrirtæki öryggi 2-img

Enn öflugri

DDoS vörn

Reki fyrirtækið þitt viðkvæmar þjónustur á netinu er hægt að kaupa afmarkaðri vörn fyrir vef- og DNS-þjónustur. Eins getur Sýn sérsniðið varnir fyrir starfsemina. Hafið samband og ráðgjafar okkar meta stöðuna með ykkur.

Kostir og eiginleikar
Fyrirtæki - Mínar síður-Fyrirtæki mínar síður-img
Mínar síður

Þjónustan er aðgengileg í gegnum Mínar síður Sýnar þar sem er mögulegt að fylgjast með stöðu árása, stöðu hreinsunar og fleiri þáttum er varða þjónustuna.

Gríðarleg afkastageta-Gríðarleg afkastageta-img
Gríðarleg afkastageta

Samstarfsaðili Sýnar rekur fjölmargar hreinsunarstöðvar á heimsvísu sem geta hreinsað frá árásarumferð áður en umferð er afhend til viðskiptavina eða minnkað árásir niður í viðráðanlegri stærðir.

Mikil álagsdreifigeta-Mikil álagsdreifigeta-img
Mikil álagsdreifigeta

Fjöldi hreinsunarstöðva tryggir að hægt er að álagsdreifa stærri árásum á marga staði og bregðast betur við þeim, í árásum er árásarumferð beint inn á aðrar leiðir til að tryggja að stærsti hluti árásar fari í gegnum vörnina.

Forgreining og eftirlit-Forgreining og eftirlit-img
Forgreining og eftirlit

Notast er við viðurkenndan búnað frá leiðandi aðila auk þess sem unnin er forgreining allan sólarhringinn, alla daga ársins þar sem hrein umferð er greind frá frá óhreinni.

Forhreinsun umferðar-Forhreinsun umferðar-img
Forhreinsun umferðar

Í þeim tilvikum þar sem þörf myndast á hreinsun eru viðbótar síur settar á eldveggi við alþjóðlegar internetgáttir í þeim tilgangi að forhreinsa augljósa óhreina umferð.

Tryggðu tekjuflæði og ímynd fyrirtækisins-Tryggðu tekjuflæði og ímynd fyrirtækisins-img
Tryggðu tekjuflæði og ímynd fyrirtækisins

Það að verða fyrir stórri DDoS árás getur verið mjög kostnaðarsamt. DDoS vörn Sýnar getur hjálpað þér að koma í veg fyrir mögulegt tekjutap og orðsporshnekki sem geta orðið í kjölfar slíkrar árásar.

Það er betra að vera með Sýn

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.

Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528

certificatecertificatecertificatecertificate