
Sjósamband
Sýnar



Fyrsta flokks netþjónusta fyrir
sjófarendur
Sýn hefur komið upp öflugu háhraða netsambandi á helstu fiskimiðum við Íslandsstrendur. Með uppbyggingunni getur Sýn veitt sjófarendum fyrsta flokks netþjónustu, sem eykur bæði öryggi og lífsgæði. Viðbragðsaðilar og mörg af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins hafa valið Sýn til að sinna fjarskiptaþjónustu sinni.

Öflug uppbygging
allan hringinn
Uppbygging á sjósambandi Sýnar hefur verið unnin í samstarfi við mörg af helstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins. Tekið hefur verið mið af þörfum sjófarenda og leitast við að tryggja öflugt og öruggt háhraðasamband þar sem þörfin er mest við Íslandsstrendur. Kerfið gagnast þó ekki einungis stærri útgerðum, heldur geta allir sem sækja sjóinn nýtt sér 4G/5G samband Sýnar.



Traustur
netbúnaður tryggir besta netsambandið
Sjósambandslausnum Sýnar fylgir fyrsta flokks netbúnaður sem er tengdur við loftnet á viðkomandi skipi til að tryggja hámarksgæði tengingar. Hægt er að tengja fjölda tækja á borð við snjallsíma og spjaldtölvur við búnaðinn og þannig deila sambandinu milli margra í einu. Ef óskað er eftir er hægt að stilla tenginguna þannig að hún mæli sérstaklega notkun hvers einstaklings um borð.
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



