Fréttir
Sýn og Sagafilm opna Heima
9. október 2026

Ný alíslensk streymisveita
Fóstbræður, Pressa, Næturvaktin, Ástríður og Tekinn meðal þess sem verður í boði. Yfir 600 klukkustundir af íslensku sjónvarpsefni á einum stað.
Sýn og Sagafilm hafa undirritað samning um nýja íslenska streymisveitu sem fer í loftið á næstu vikum. Veitan heitir Heima og á henni verður eingöngu íslenskt efni úr söfnum beggja fyrirtækja.
Meðal þess sem verður í boði eru úrval af leiknum íslenskum seríum á borði við Pressu, Næturvaktina, Fóstbræður, Ástríður og Stelpurnar. Þar verður líka að finna skemmtiefni eins og Tekinn, Heimsókn, Hæðina og Ísskápastríð. Safnið mun spanna fjóra áratugi af íslenskri sjónvarpsframleiðslu.
Tilkynnt var um samstarfið í afmælisþætti sem sýndur var í kvöld, á fjörutíu ára afmæli fyrstu útsendingar Stöðvar 2 þann 9. október 1986. Stærsti hluti þess efnis sem fer á Heima var upphaflega frumsýnt á Stöð 2 og SÝN en að auki verður í boði úrval efnis sem framleitt hefur verið í gegnum tíðina af Sagafilm, einu elsta og umfangsmesta framleiðslufyrirtæki landsins.
Heima er í sameiginlegri eigu Sýnar og Sagafilm og fyrirtækin leggja bæði til dagskrársöfn sín og reka veituna í sameiningu.
„Þetta er efni sem þjóðin ólst upp við og það hefur legið í söfnum. Fjörutíu ár af íslensku sjónvarpsefni varð ekki til af sjálfu sér. Það er til af því að fólk kveikti á sjónvarpinu, borgaði áskriftina og fylgdist vel með. Okkur langar að skila því til baka á einum stað þar sem auðvelt er að finna það.“ Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, framkvæmdastjóri miðla hjá Sýn
„Íslenskt efni á skilið betra heimili en að safna ryki í hillum sem enginn hefur aðgang að. Með þessari nýju alíslensku streymisveitu gefst loksins tækifæri til að nálgast síbreytilegt úrval af íslensku gæðaefni, kvikmyndum, leiknum seríum, allt frá glæpaseríum, dramaseríum til gamansería til sjónvarpsþátta af hvers kyns toga, auk heimildamynda. Stóra markmiðið er svo að Heima verði vísir að heimili íslenskrar framleiðslu. “ Skarphéðinn Guðmundsson, Sagafilm
Heima fer í loftið á næstu vikum og verður aðgengileg í gegnum sjónvarpsþjónustu Sýnar. Nánari upplýsingar um opnunardag, verð og vöruframboð verða kynntar þegar veitan opnar.
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



