Sýn

Ný Sýn fyrir þig

Í dag sameinast vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport öll undir merki Sýnar.

12. júní 2025

ný sýn-ný sýn-img

Þessi breyting er mikilvægt skref til að einfalda hlutina og gerir allt skýrara og þægilegra fyrir þig sem viðskiptavin Sýnar. Við kveðjum þessi ástsælu vörumerki en varðveitum frumkvöðlaandann sem í þeim býr til að sækja fram og veita enn betri þjónustu til framtíðar.

En hvað þýðir þetta í raun og veru? Við kynnum til leiks nýja og einfalda áskriftarpakka þar sem net- og sjónvarpsþjónusta renna saman á nýjan hátt. Öll samskipti verða einfaldari og fleiri spennandi nýjungar verða kynntar á næstunni. Það sem breytist þó ekki er að þú ert áfram með örugg fjarskipti, góða þjónustu, áreiðanlegar fréttir og framúrskarandi úrval af sjónvarpsefni og íþróttum – en nú í nafni Sýnar.

Ný nöfn – sama frábæra þjónustan

Sýn er nýtt aðalheiti félagsins sem kemur í stað Vodafone og Stöðvar 2. Öll þjónusta fyrirtækisins verður aðgengileg á vefnum syn.is.

Fjarskiptaþjónusta er hér eftir veitt í nafni Sýnar í nánu samstarfi við Vodafone Group á alþjóðavísu sem tryggir áfram öfluga vöruþróun, innviði og aðgang að alþjóðlegri þekkingu.

SÝN er nýtt heiti á línulegu sjónvarpstöðinni Stöð 2. Þar verður áfram hægt að horfa á hágæða sjónvarpsefni, innlent og erlent sem og kvöldfréttir alla daga ársins.

SÝN+ er nýtt heiti á streymisveitunni Stöð 2+ sem býður upp á fjölda íslenskra og erlendra þáttaraða, vandað talsett barnaefni og gott úrval kvikmynda.

SÝN Sport er nýtt heiti á Stöð 2 Sport og mun stöðin áfram bjóða upp á besta sætið í heimi íþrótta - og er enski boltinn þar á meðal.

Fréttastofa Sýnar er nýtt heiti á fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar sem heldur áfram að flytja fréttir á Vísi, sjónvarpsstöðinni Sýn og Bylgjunni.

Og svo það sé á hreinu: Bylgjan, FM957, X977 og Vísir halda sínum nöfnum – en verða hluti af nýrri samræmdri ásýnd félagsins.

Það er meira spennandi að vera með Sýn.

Deila

Það er betra að vera með Sýn

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.

Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528

certificatecertificatecertificatecertificate