Sýn
Sjónvarp
Breytingar á sjónvarpsdreifingu Sýnar
Sýn breytir dreifileiðum – Stöð 2 appið aðgengilegt öllum landsmönnum án endurgjalds
12. júní 2025

Sýn hf. hefur ákveðið að hætta dreifingu á línulegu og ólínulegu sjónvarpsefni sínu yfir dreifikerfi Símans. Þessi ákvörðun er liður í þróun dreifileiða fyrirtækisins og endurspeglar breyttar áhorfsvenjur og tækniframfarir á markaði. Allt efni Sýnar – þar með talið efni SÝN+ og SÝN Sport – verður áfram aðgengilegt öllum landsmönnum í gegnum appið okkar, SÝN Sjónvarpsappið (áður Stöð 2 appið), sem er fáanlegt á öllum helstu snjalltækjum.
Við leggjum áherslu á að þessi breyting snýst ekki um að loka á aðgengi, heldur að færa þjónustuna yfir í sveigjanlegri og nútímalegri dreifileið sem byggir á OTT-tækni (Over-The-Top) – aðferð sem flestir neytendur þekkja nú þegar frá þjónustum á borð við Netflix og Disney+. Notendur geta því áfram notið efnis okkar, óháð því hvaða fjarskiptafélagi þeir tilheyra.
Erlend fyrirmynd
Sýn telur mikilvægt að mæta kröfum neytenda og einfalda sinn rekstur í flóknu samkeppnisumhverfi. Til samanburðar má nefna að alþjóðlegar efnisveitur eins og Netflix, Viaplay og Disney+ dreifa einungis efni sínu í gegnum eigin vettvang – án þess að fyrir séu sérstakir dreifingarsamningar við fjarskiptafélög. Sama gildir um SÝN Sjónvarpsappið (áður Stöð 2 appið): notandi með netaðgang getur tengst þjónustunni með einföldum hætti og notið efnis Sýnar á eigin forsendum.
Skýr markaðsþróun
Á síðustu árum hefur orðið afgerandi færsla frá hefðbundnum sjónvarpsdreifikerfum yfir í internetbundna streymisþjónustu. Samkvæmt nýjustu tölum notar stór hluti íslenskra heimila slíkar lausnir, og þróunin sýnir að áskriftir í hefðbundnum kerfum eru stöðugt að dragast saman.
Við erum sannfærð um að þessi þróun geri þjónustu okkar aðgengilegri, hagkvæmari og einfaldari – og hvetjum alla notendur til að nýta sér þá möguleika sem appið býður upp á.
Heildsöluaðgangur áfram í boði
Við viljum jafnframt undirstrika að heildsöluaðgangur að efni Sýnar verður áfram í boði fyrir þá sem óska – í gegnum appið. Þetta fyrirkomulag tryggir jafna stöðu á markaði og er í fullu samræmi við það sem tíðkast í dreifingu efnis bæði hérlendis og erlendis.
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



