
Umhverfi
Virðing fyrir náttúrunni og lágmörkun umhverfisáhrifa er meginstef í sjálfbærnistefnu Sýnar. Umhverfisvernd og ábyrg auðlindanýting er leiðarljós í allri starfseminni. Félagið fylgir eftir skýrum ferlum er varðar umsýslu og rekstur fjarskiptainnviða og er ávallt leitast við að framkvæmdir á vegum félagsins valdi sem minnstu umhverfisraski.

Félagið hefur frá árinu 2015 mælt umhverfisáhrifin frá starfseminni og unnið er markvisst að því að draga úr þeim sem felst meðal annars með ábyrgri nýtingu auðlinda, innleiðingu á orkusparandi aðgerðum, minnkun úrgangs og stuðningi við hringrásarkerfi í starfseminni. Markmiðið er að auka notkun á vistvænni orku og að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Félagið styður við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna númer 9, 12 og 13 sem snýr að nýsköpun og uppbyggingu, ábyrgri neyslu og framleiðslu og aðgerðum í loftslagsmálum.
Stjórn og stjórnendur eru meðvituð um að sjálfbærniáhættur hafi áhrif á starfsemi og virðiskeðju félagsins. Byggt á tvöfaldri mikilvægisgreiningu og áhættustýringu fjarskiptainnviða eru megin umhverfisáhættur Sýnar mögulegur raforkuskortur, náttúruvá og aukin losun gróðurhúsalofttegunda. Áhættustýringin felst í því að vakta og lágmarka þá áhættu í starfseminni. Nýsköpun gegnir mikilvægu hlutverki í framþróun í átt að vistvænni fjarskiptatækni. Leitast er við að einfalda ferla sem felst meðal annars í því að sjálfvirknivæða ferla, þróa öflugar stafrænar lausnir og innleiða nýja tækni. Þá á sér stað samstarf með viðskiptavinum, birgjum og verktökum við að þróa vörur og þjónustu til að lágmarka áhrifin sem félagið hefur á umhverfið.
Félagið nýtir hugbúnað frá Klöppum hf. til að taka saman árlegt umhverfisuppgjör.
Frá árinu 2015 hefur félagið kolefnisjafnað starfsemina með trjárækt í samstarfi við Kolvið. Tekin var ákvörðun árið 2024 og nú aftur fyrir 2025 að kaupa 200 staðfestar kolefniseiningar í gegnum ICR til að jafna kolefnislosun Sýnar. Heildarlosun 2025 fyrir umfang 1 og 2, er 157,2 tonn CO2 sem er lækkun um 8,34% eða 14,3 tonn frá árinu áður. Þessi nálgun að fjárfesta í blönduðum kolefnisjöfnunareiningum tryggir sveigjanleika, dregur úr áhættu og hámarkar jákvæð umhverfisleg og samfélagsleg áhrif.
Hluti af hringrásarkerfi félagsins er skapa vettvang fyrir viðskiptavini til að draga úr vistspori tækja. Félagið býður viðskiptavinum að koma með eldri snjalltæki með þjónustunni „Notað upp í nýtt" hjá Sýn. Ef tæki reynist verðlaust þá er því fargað á ábyrgan hátt í samstarfi við fyrirtækið Foxway. Samkvæmt úttekt Foxway þá kom hringrásarkerfið í veg fyrir losun á rúmlega 10.488 kg koltvísýringsígilda á síðastliðnu ári. Mikill meirihluti þeirra tækja sem var skilað inn í hringrásarverkefnið öðluðust nýtt líf, eða um það bil 82,5% og hin voru nýtt í varahluti og góðmálmarnir og önnur hráefni sem í þeim var að finna voru endurnýtt.
Árið 2025 hélt Sýn sínu striki við að leggja sitt af mörkum í flokkun úrgangs sem kemur frá félaginu. Starfsfólk er að jafnaði hvatt til að flokka allt það sorp sem myndast í og við reksturinn. Flokkunartunnur eru staðsettar víðsvegar um fyrirtækið til að auðvelda flokkun.
Bílafloti Sýnar saman stóð af 33 bifreiðum í lok árs 2025. Skipting bílaflotans var eftirfarandi; raf- eða tengiltvinnbílar 16 stk., Hybrid bifreiðar 2 stk., breyttar jeppabifreiðar með dísel hreyfli 6 stk., sendibifreiðar og jepplingar með dísel hreyfli 7 stk. Sýn hvetur starfsfólk sitt til að notast við vistvænar samgöngur til og frá vinnu með tvennum hætti. Annars vegar með því að bjóða starfsfólki að gera samning um samgöngustyrk en með þeim samningi skuldbindur starfsfólk sig til að notast við vistvænar samgöngur í það minnsta þrisvar sinnum í viku. Árið 2025 nýttu að jafnaði 72 einstaklingar sér samgöngustyrk félagsins. Góð aðstaða er fyrir starfsfólk til að koma hjólandi eða gangandi til vinnu. Boðið er upp á upphitaða hjólageymslu með tengimöguleikum til að hlaða rafhjól og góða búningsaðstöðu með sturtu og þurrkskápum. Einnig býður félagið upp á rafhleðslu við höfuðstöðvarnar sem bæði starfsfólk og viðskiptavinir geta nýtt sér að kostnaðarlausu.




