
Mannauður og menning
Mannauðurinn er mikilvægur hlekkur í velgengni og vexti félagsins. Rík áhersla er lögð á að halda í og laða að framúrskarandi fólk sem stuðlar að hámarks árangri einstakra teyma og félagsins í heild. Það gerum við með því að búa því skemmtilegt, nútímalegt og heilbrigt vinnuumhverfi. Við leggjum áherslu á jákvæða menningu, öfluga liðsheild og sýnum hvort öðru virðingu í hvívetna. Okkur er umhugað um að efla fólk í faglegum og persónulegum vexti og veita því tækifæri og traust til að takast á við spennandi verkefni þar sem styrkleikar þess fá sín notið. Því til stuðnings tóku nokkrir starfsmenn við stjórnendahlutverki á árinu sem allir eiga það sameiginlegt að hafa starfað hjá félaginu um langt skeið og þekkja starfsemina því vel. Þessi framþróun endurspeglar bæði metnað einstaklinganna og skuldbindingu okkar við að skapa umhverfi þar sem hæfileikar fá að njóta sín.
Mannauðsstefnu Sýnar er ætlað að styðja við stefnu félagsins sem eru samvinna, skilvirkni og vöxtur.



Þín sýn um frábæran vinnustað er okkar sýn
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við viljum að starfsfólk hlakki til að mæta til vinnu, upplifi sanngirni, gagnsæi og virðingu og sé stolt af því að vinna hjá Sýn. Markmið okkar er að mannauðsstjórnun í félaginu sé virðisaukandi og styðji við stefnu félagsins.
Fólkið okkar

Starfsánægja
Í byrjun árs var starfsánægjukönnun lögð fyrir allt starfsfólk Sýnar á vegum Gallup. Niðurstöður könnunarinnar gáfu dýrmæta innsýn í líðan starfsfólks sem unnið hefur verið með á árinu með það að markmiði að auka starfsánægju og helgun starfsfólks. Niðurstöður voru kynntar öllu starfsfólki og í kjölfarið voru gerð aðgerðaplön innan hverrar einingar. Könnunin er framkvæmd árlega og verður næsta könnun gerð á fyrsta ársfjórðungi 2026.
Frammistöðumat og markmiðasetning
Á árinu var áhersla lögð á virka frammistöðustjórnun og stjórnendur hvattir til að eiga frammistöðusamtöl við starfsfólk og styðja það til árangurs með öflugri markmiðasetningu fyrir árið. Þá var einnig haldið áfram með uppfærslu starfslýsinga fyrir allt starfsfólk samhliða breytingum á skipuriti félagsins.
Innleiðing bættra vinnubragða í mannauðsmálum skilaði sér í jákvæðum niðurstöðum í árlegri könnun meðal starfsfólks. Fleiri starfsmenn en áður telja starfslýsingar lýsandi fyrir störf sín, auk þess sem hlutfall þeirra sem hafa farið í frammistöðusamtal og fengið kynningu á starfsánægjukönnun hækkaði á milli ára.

Jafnrétti, mannréttindi og fjölbreytileiki eru okkur hugleikin og áhersla lögð á að starfsfólk sé metið að verðleikum, njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum auk þess sem hugað er að inngildingu. Sýn hefur statt og stöðugt unnið að því að skapa vinnuumhverfi sem hvetur til fjölbreytni og jafnréttis. Við vitum að árangur í jafnréttismálum er ekki eitthvað sem gerist af sjálfu sér heldur er það ákvörðun sem við erum stolt af að hafa tekið. Við munum halda áfram að leita leiða til að tryggja fjölbreytileika og inngildingu bæði í hópi stjórnenda og starfsfólks.
Starfsfólki er ekki mismunað á grundvelli kyns, kynþáttar eða þjóðernis, kynhneigðar, aldurs, trúar, skoðana eða annarra þátta skv. ákvæði laga nr. 86/2018. Hegðun á borð við kynbundið ofbeldi, kynbundna og kynferðislega áreitni eða önnur óviðeigandi samskipti eða hegðun er ekki liðin. Starfsfólki af öllum kynjum er gert kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Sýn hefur markað sér jafnréttisáætlun í samræmi við ákvæði laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Áætlunin á að tryggja jöfn tækifæri og kjör starfsfólks af öllum kynjum og að allir fái notið sín. Hvers kyns mismunun á grundvelli kynferðis eða annarra þátta er í andstöðu við jafnréttisáætlun og jafnréttislög og er óheimil. Framkvæmdastjórn samþykkti uppfærða aðgerðaráætlun sem er hluti af jafnréttisáætlun í lok árs til þriggja ára. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á framkvæmd hennar.
Jafnlaunavottun
Sýn fór í gegnum viðhaldsúttekt á jafnlaunakerfi félagsins síðastliðið vor. BSI á Íslandi tók kerfið út og gáfu út viðhaldsvottun í kjölfarið. Niðurstaða úttektarinnar var að óútskýrður launamunur á heildarlaunum innan félagsins reyndist aðeins 0,5% konum í vil. Samkvæmt jafnréttisáætlun Sýnar er markmið félagsins að vera undir 2% í óútskýrðum launamun og því virkilega ánægjulegar niðurstöður.
Fræðsla og starfsþróun – UNI
UNI er regnhlífarhugtak sem nær yfir alla fræðslu sem starfrækt er innan Sýnar. Markmið UNI er að tryggja samræmda grunnþjálfun ásamt því að bjóða upp á sérhæfða fræðslu sem mætir þörfum hvers starfsmanns.
Á árinu var kynnt ný fræðsluáætlun þar sem áhersla var lögð á stjórnendaþjálfun og nýliðaþjálfun í bland við að efla móttöku nýliða. Fræðslan var að stærstum hluta rafræn, en einnig var boðið upp á staðbundin námskeið og fræðslu í BESTA Bistro, samkomusal félagsins.
Auk starfstengdrar þjálfunar var boðið upp á námskeið og fyrirlestra sem stuðla að persónulegum vexti og vellíðan.
Sýn vill vera í fararbroddi þegar kemur að fræðslumálum og leitar allra leiða til að ná að efla og fræða starfsfólk okkur til að vera alltaf með bestu kunnáttu hverju sinni. Starfsfólk er hvatt til að halda persónulegri símenntun sem mun styrkja starfsfólk í sinni grein og með því efla það til að halda starfsþróun innan félagsins áfram.
Reglulegir starfsmannafundir eru mikilvægur vettvangur fyrir opna upplýsingagjöf og samtal innan félagsins. Fundirnir eru aðgengilegir öllu starfsfólki og nýttir til að miðla fræðslu og upplýsa um helstu verkefni og málefni líðandi stundar.


Vinnuvernd
Hjá Sýn er lögð áhersla á að tryggja öruggt og heilbrigt vinnuumhverfi fyrir allt starfsfólk. Starfsfólki býðst árlegur heilsustyrkur, inflúensubólusetningar auk þess sem félagið á í samstarfi við ytri fagaðila sem þjónusta starfsfólk í átt að bættri heilsu.
Innan Sýnar starfar virkur vinnuverndarhópur. Hlutverk hans er að taka til umfjöllunar mál er varða aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustaðnum.
Gagnkvæm virðing er lykilorð í öllum samskiptum hjá Sýn. Við leggjum áherslu á að 14 gr. laga nr. 150/2020 um kynbundið ofbeldi, kynbundin og kynferðislega áreitni, sé fylgt, en skv. henni er kynbundin og kynferðisleg áreitni, einelti eða önnur samskipti, sem eru til þess fallin að valda vanlíðan hjá öðrum ekki liðin.

EKKO
Sýn er með samkomulag við Vinnuvernd um að taka að sér EKKO vöktun fyrir félagið. EKKO er skammstöfun fyrir einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi á vinnustað. Markmiðið er að styrkja enn frekar aðgerðir Sýnar gegn ósæmilegri hegðun á vinnustað og styðja náið við starfsfólk sem telur sig verða fyrir slíkri hegðun. Sálfræðiteymi Vinnuverndar vaktar tilkynningar sem berast í gegnum tilkynningarsíðuna um mögulegt einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi á vinnustað. Sálfræðiteymið sem hefur þannig hlutverk í viðbragðsteymi félagsins er hlutlaus og óháður aðili og aðstoðar starfsfólk. EKKO ráðgjafi útskýrir skilgreiningar á einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi og fer yfir ýmsa þætti verklagsins til að aðstoða starfsfólk til að taka upplýsta ákvörðun um til hvaða aðgerða það vill grípa til.
Félagslífið
Mikið er lagt upp úr góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og því að hafa gaman í vinnunni. Vinnustaðamenningin einkennist af drifkrafti, samvinnu og frumkvæði. Boðleiðir eru stuttar og starfsfólk hjálpast að við að ná settum markmiðum.
Innan fyrirtækisins starfar starfsmannafélagið Stýna, sem stendur reglulega fyrir viðburðum fyrir starfsfólk og fjölskyldur þeirra en auk þess eru fjölmargir klúbbar starfræktir á meðal starfsfólks til dæmis hjólahópur, hlaupahópur og píluklúbbur svo fátt eitt sé nefnt.