ars1-ars1-img

Sýn okkar allra

Sýn gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi sem fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki. Þjónusta félagsins gegnir lykilhlutverki í grunninnviðum samfélagsins og tryggir öflug samskipti einstaklinga, atvinnulífs og opinberra aðila um land allt. Félagið starfar í samræmi við lög og reglur og leggur áherslu á ábyrga stjórnarhætti, gagnsæi og fagmennsku. Virðing og jafnræði eru grundvallargildi í öllum samskiptum félagsins við starfsfólk, viðskiptavini og birgja.

ars1-ars1-img
Sýnum stuðning haus-Sýnum stuðning haus-img
Sýnum stuðning haus-Sýnum stuðning haus-img

SÝNum stuðning

Sýn leggur áherslu á virka og ábyrga þátttöku í samfélaginu og styður fjölbreytt verkefni á sviði íþrótta, menningar og góðgerðarmála. Stuðningurinn felst meðal annars í fjárframlögum, samstarfssamningum, þjónustuafsláttum og öðrum framlögum sem miða að því að skapa jákvæð samfélagsleg áhrif.    Við val á samstarfi og styrkjum er litið til þess að verkefnin samræmist stefnu félagsins um sjálfbærni og stuðli að jákvæðum og mælanlegum samfélagslegum áhrifum.

Á árinu 2025 hélt félagið áfram samstarfi við Landsbjörgu og setti jafnframt af stað verkefnið SÝNum stuðning, þar sem ágóði rann til Bleiku slaufunnar.

syn_linuleg-frettir-Fréttir - vantar mynd kemur á morgun-img

Fréttir og dagskrá

Fréttastofa Sýnar miðlar daglega upplýsingum sem varða almenning og hafa samfélagslegt gildi, þar á meðal um öryggismál og málefni líðandi stundar. Félagið framleiðir jafnframt fjölbreytt dagskrár- og fréttaefni sem stuðlar að upplýstri umræðu og aukinni vitund um málefni sem skipta samfélagið máli. Dagskrá Sýnar endurspeglar íslenskt samfélag í allri sinni fjölbreytni. Með vönduðu og fjölbreyttu efni er lögð áhersla á að miðla upplýsingum, segja sögur fólks og skapa vettvang fyrir umræðu. Á meðal verkefna ársins voru meðal annars:

  • Blóðbönd, dramatísk þáttaröð um fjölskyldutengsl og leyndarmál.

  • Flugþjóðin, heimildaþættir Íslendinga og flugið, bæði atvinnugreinina og áhrif hennar á samfélagið, ferðalög og daglegt líf.

  • Hvar er best að búa, lífsstíls- og samfélagsþáttur þar sem mismunandi búsetukostir á Íslandi eru skoðaðir og bornir saman.

  • Stóra stundin, viðtals- og mannlífsþáttur þar sem fólk segir frá stórum augnablikum í lífi sínu, sigrum, áskorunum og tímamótum.

  • Tilbrigði um fegurð, heimilda- og umræðuþáttur sem fjallar um fegurð, líkamsímynd og samfélagsleg viðmið frá ólíkum sjónarhornum.

  • Viltu finna milljón, afþreyingarþáttur sem sameinar skemmtun og þátttöku almennings. Þátturinn stuðlar að fjármálalæsi, hvatningu og virkni áhorfenda.

  • Ísland í dag og Gott kvöld, daglegur frétta- og mannlífsþáttur sem styrkir lýðræðislega umræðu með því að fjalla um innlend málefni, mannlíf og samfélagslegar áskoranir.

  • Okkar eigið Ísland, þar sem Garpur Elísabetarson ferðast vítt og breitt um Ísland með góðu fólki og lendir í ýmsum ævintýrum. Útivist á áhugaverðum stöðum er hér í öndvegi og náttúra Íslands í allri sinni dýrð.

  • Rax – Augnablik, sjónrænir og hugljúfir þættir byggðir á ljósmyndum RAX, þar sem íslensk náttúra og stemning fá að njóta sín.

  • Kryddsíldin, sem hefur í yfir þrjá áratugi verið vettvangur stjórnmálaumræðu á gamlársdag.

  • Halló heimur með Skoppu og Skrítlu, er barnaefni sem styður við þroska og gleði yngstu áhorfenda.

  • Gott kvöld, kvöldþáttur með blöndu af viðtölum, menningu, tónlist og umræðu líðandi stundar.

Á árinu var jafnframt stigið stórt skref í að auka aðgengi að efni með opnun línulegrar rásar fyrir alla landsmenn.

syn_linuleg-frettir-Fréttir - vantar mynd kemur á morgun-img

Árs- & sjálfbærniskýrsla 2025