Heimsmarkmið

5 Jafnrétti kynjanna
Jafnlaunavottun, jafnréttisáætlun Sýnar og jafnlaunastaðallinn ÍST 85:2012 stuðlar að eftirfylgni við heimsmarkmið númer 5.
8 Góð atvinna og hagvöxtur
Tryggja góða stjórnahætti þar sem tekið er tillit til UFS leiðbeininganna Nasdaq. Upplýsingaöryggisstaðallinn ISO 27001, siðareglur, stefnu um mútur og peningaþvætti, öryggis-, heilbrigðis- og vinnuumhverfisstefna, birgja- og innkaupastefna. Ásamt samstarfi með Almannavörnum og Neyðaröryggisfjarskiptum vegna ófyrirséðar náttúruvár stuðla að eftirfylgni við heimsmarkmið númer 8.
9 Nýsköpun og uppbygging
Áhersla á stuðning við nýsköpun, framþróun og sjálfbærni á sviði stafrænnar uppbyggingar tengt fjarskiptum og fjölmiðlum, fjárfesting í tækninýjungum, rannsóknum og þróun er varðar örugga, trygga og sjálfbærari uppbyggingu fjarskiptainnviða ásamt netvöktun og fræðslu í samstarfi við Cert-IS netöryggissveit Íslands og Fjarskiptastofnunar stuðlar að eftirfylgni við heimsmarkmið númer 9.
12 Ábyrg neysla og framleiðsla
Upplýsingaöryggisstaðalinn ISO 27001, gæðastefna, innleiðing á umhverfismarkmiðum byggt á sjálfbærnistaðlinum VSME, árleg sjálbærniskýrsla byggt á viðmiðum VSME og birgja- og innkaupastefna Sýnar stuðlar að eftirfylgni við heimsmarkmið númer 12.
13 Aðgerðir í loftslagsmálum
Aðgerðaáætlun, innleiðing á umhverfismarkmiðum byggt á sjálfbærnistaðlinum VSME. Loftslagssamningur Festu og Reykjavíkurborgar, umhverfis- og sjálfbærnifræðsla til starfsfólks og birgja- og innkaupastefna Sýnar stuðlar að eftirfylgni við heimsmarkmið númer 13.