besta-besta-img

Sjálfbærni

Sýn hf. leggur ríka áherslu á góða stjórnarhætti, umhverfis og félagsþætti í starfsemi sinni. Kjarninn í stefnu félagsins er ábyrgur rekstur og eru stjórnendur staðráðnir í að samþætta sjálfbæra starfshætti í starfsemina og draga úr áhættu tengdri sjálfbærni. Starfsmenn eru vakandi gagnvart nýrri tækni og nýjum lausnum til að auka sjálfbærni í starfseminni. Sýn fylgir eftir sjálfbærnistefnu og ber forstjóri og stjórnendur ábyrgð á innleiðingu hennar og að hún sé í samræmi við alþjóðamælikvarða á sviði sjálfbærniupplýsingagjafar og meginmarkmiða félagsins til framtíðar.

Stjórn og stjórnendur Sýnar eru meðvituð um að sjálfbærniþættir hafi áhrif á rekstur og virðiskeðju félagsins og hefur félagið sett sér markmið til að draga úr sjálfbærniáhættu sem tengist starfseminni, vörum og þjónustu.

besta-besta-img

Inngangur

Sjálfbærnistefna Sýnar rammar inn helstu áherslur félagsins í sjálfbærni og er innleidd í alla starfsemina. Lögð er rík áhersla á ábyrgan rekstur, og að tekið sé mið af helstu umhverfis- og félagslegum þáttum auk stjórnarhátta (hér eftir nefnt UFS þættir), í starfsemi félagsins. Kjarninn í stefnunni felst í þeirri ábyrgð að reka fjarskipta og fjölmiðlafyrirtæki á Íslandi. Sýn hyggst takast á við helstu áhættur í umhverfinu, samfélaginu og virðiskeðju sinni með fyrirbyggjandi hætti þar sem horft er til þess að auka sjálfbærni, vernda orðspor, efla seiglu og verðmæti félagsins með hagsmuni haghafa Sýnar í öndvegi. Sjálfbærnistefnan byggir á tvöfaldri mikilvægisgreiningu þar sem lagt er mat á þau helstu umhverfis- og samfélagsáhrif (jákvæð og neikvæð) félagsins auk þeirra sjálfbærniáhætta og tækifæra sem geta haft áhrif á Sýn og virðiskeðju þess.

Markmið

Markmiðið er að stefnan endurspegli lykil sjálfbærniáherslur Sýnar út frá veigamestu UFS áhrifum starfseminnar sem og utanaðkomandi UFS áhættum sem að félaginu steðja. Skal slíkt vera mælt í samræmi við gildandi lög og leiðbeinandi viðmið og innleitt í almennt áhættumat félagsins. Áhersla er lögð á að samþætta sjálfbæra starfshætti í starfsemi, markmið og aðgerðir félagsins og draga úr áhættu tengdri sjálfbærni ásamt því að greina skilmerkilega frá slíku í upplýsingagjöf félagsins.

Ábyrgðaraðilar

Stjórn ber ábyrgð á að samþykkja stefnuna og uppfærslur á henni. Forstjóri ber ábyrgð á að tryggja að viðeigandi endurskoðun á stefnunni eigi sér stað.

Forstjóri og framkvæmdastjórn bera ábyrgð á innleiðingu á sjálfbærnistefnu innan félagsins og framkvæmdastjórar gæta þess að viðeigandi reglur og verklag innan starfssviðs þeirra séu í samræmi við stefnuna og að starfsmenn séu upplýstir um efni hennar.

Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á því að aðrar stefnur, reglur og vinnuleiðbeiningar sem samþykktar eru séu í samræmi við sjálfbærnistefnu þessa.

Mannauðsstjóri ber ábyrgð á því að skipa í sjálfbærnistýrihóp ár hvert og ber mannauðsstjóri ábyrgð á vinnu hópsins. Hlutverk hópsins er að hafa umsjón með framkvæmd sjálfbærnistefnu, framkvæmd sjálfbærni áhættumats með tilliti til UFS rekstraráhættu, skrifa árlega sjálfbærniskýrslu félagsins, þróa sjálfbærnimarkmið, verkefnastýra aðgerðum og fylgjast með framvindu þeirra.

Upplýsingagjöf

Sýn birtir upplýsingar árlega um ófjárhagsleg atriði tengd starfsemi félagsins í samræmi við lög um ársreikninga en þar er kveðið á um að félagið skuli láta fylgja með skýrslu stjórnar, ófjárhagslega upplýsingagjöf í samræmi við ákvæði 66. gr. d í lögum um ársreikninga 3/2006. Til viðbótar, þá birtir Sýn árs- og sjálfbærniskýrslu sem byggir á valkvæðum upplýsingastaðli (e. Voluntary Reporitng Standard for SMEs, VSME) sem Evrópusambandið hefur sett fram.

Lykilþættir í sjálfbærnistefnu

Haustið 2025 fór Sýn í uppfærslu á tvöfaldri mikilvægisgreiningu með aðstoð ráðgjafa með það að markmiði að skerpa á áherslum og mikilvægisþáttum m.t.t. kjarnastarfsemi félagsins og virðiskeðju þess. Sjálfbærnistýrihópur Sýnar lagði mat á 14 sjálfbærniviðfangsefni úr ESRS sjálfbærnistaðlinum út frá áhrifum, áhættu og tækifærum sem tengjast félaginu. Mikilvægustu þættir Sýnar voru metnir út frá fimm flokkum og 7 undirflokkum líkt og sjá á myndinni hér fyrir neðan. Sýn hefur sett sér langtímamarkmið út frá þessum flokkum sem koma fram í stefnu þessari og á hverju ári er unnið að aðgerðum og mælanlegum markmiðum tengdum þeim sem birt er í árlegri sjálfbærniskýrslu félagsins.

lykilþættir í sjálfbærnistefnu-lykilþættir í sjálfbærnistefnu-img

Umhverfisþættir

Umhverfisstefna Sýnar er að ganga um landið af virðingu, með umhverfisvernd að leiðarljósi. Sýn vinnur þannig markvisst að því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum og stuðla að sjálfbærri nýtingu orku og auðlinda. Félagið leggur áherslu á að framkvæmdir og rekstur hugi að náttúru, samfélagi og að loftslags- og hringrásarhugsun sé samþætt allri starfsemi. Félagið styður við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna númer 9, 12 og 13 sem snýr að nýsköpun og uppbyggingu, ábyrgri neyslu og framleiðslu og aðgerðum í loftslagsmálum.

Félagslegir þættir

Sýn er umhugað um andlega og félagslega vellíðan starfsfólks og leggur áherslu á að byggja upp heilbrigt vinnuumhverfi þar sem hlúið er að vellíðan starfsfólks, mannréttindum, fjölbreytileika og inngildingu. Félagið styður við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna númer 5 sem snýr að jafnrétti kynjanna og númer 8, góð atvinna og hagvöxtur sem styður við sjálfbæran hagvöxt og arðbær og mannsæmandi atvinnutækifæri fyrir alla.

Stjórnarhættir

Stjórn og stjórnendur vinna samkvæmt siðareglum félagsins og bera ábyrgð á áhættu sem tengist stjórnarháttum, siðferði, spillingu og hlítni við lög og reglur. Sýn fylgir viðurkenndum leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, með það að markmiði að styrkja innviði Sýnar og auka gagnsæi.

Helstu markmið

Helstu markmið-Helstu markmið-img

Árs- & sjálfbærniskýrsla 2025