placeholder-add-img

Sögulegur samruni

Umfangsmesta verkefni ársins 2025 var endurmörkun Sýnar. Vegferðin hófst á vormánuðum árið 2024 þegar vinnan við stefnumótun Sýnar hófst. Frá upphafi var lögð áhersla á að vinna stefnu félagsins í þéttri samvinnu við starfsfólk með viðskiptavininn í hjarta hverrar ákvörðunar. Öllu starfsfólki gafst færi á þátttöku í stefnumótunarvinnunni og í gegnum allt ferlið unnu um sjötíu manns af fullum þunga að mótun nýrrar stefnu félagsins. Þessi vinna leiddi í ljós sterkan samhljóm á meðal starfsfólks, bæði hvað varðar framtíðarsýn en einnig varðandi skilgreiningu á skýrri stefnu félagsins til næstu ára. Stefna félagsins sprettur þannig upp úr grasrótinni og endurspeglar sýn starfsfólks um hvernig gera megi gott fyrirtæki enn betra. Út frá vinnunni varð til ný framtíðarsýn félagsins sem við teljum skapa spennandi grundvöll að nýrri sýn sem samþætt fjölmiðla- og tæknifélag. Félag sem starfar undir samræmdri vörumerkjastefnu með þarfir og væntingar viðskiptavina að leiðarljósi. Framtíðarsýn félagsins verður þannig, Þín sýn er okkar sýn.

placeholder-add-img
Samruni15-Samruni15-img
Samruni15-Samruni15-img

Ný samræmd vörumerkjastefna

Saga Sýnar byggir á sögu frumkvöðla sem risu upp gegn einokun, buðu nýjar lausnir og ferska nálgun í þjónustu við viðskiptavini bæði í fjarskiptum og í fjölmiðlun. Árið 1986 hófu Stöð 2 og Bylgjan göngu sína sem fyrstu einkareknu sjónvarps- og útvarpsstöðvar landsins og breyttu íslensku fjölmiðlaumhverfi til frambúðar. Það sama á við fjarskiptin. Þegar einkaaðilum var fyrst heimilt að reka fjarskiptakerfi á Íslandi árið 1996 spruttu fram ný fyrirtæki sem sköpuðu samkeppni. Nokkur þeirra sameinuðust síðar undir merkjum Vodafone.

Síðustu ár hafa verið ár breytinga og nýrra áherslna í rekstri félagsins. Lögð hefur verið áhersla á að samþætta starfsemina, auka samvinnu og einfalda til að auka skilvirkni í rekstri. Því var farið í að einfalda vörumerkjastefnu fyrirtækisins til að draga úr flækjustigi fyrir viðskiptavini, auka samheldni starfsfólks og ná meiri slagkrafti á markaði. Saga félagsins var höfð til hliðsjónar þegar ákvörðun var tekin um að sameina vörumerkin Stöð 2 og Vodafone undir merkjum Sýnar. Arfleifð fyrirtækjanna er einmitt að taka djarfar ákvarðanir og hafa hugrekkið til að taka skref fram á við.

Ráðist var í yfir 200 verkefni sem unnin voru í sex verkefnastraumum víðsvegar um fyrirtækið. Flestir þættir sem hafa áhrif á vörumerkjavirði voru snertir í þessari vinnu, eiginleikar vörumerkisins og markaðsráðarnir. Eitt þessar verkefna var að einfalda sjónvarpspakkaframboð fyrirtækisins en viðskiptavinir höfðu lengi kallað eftir einfaldara vöruframboði. Því var ráðist í að fækka sjónvarpspökkum úr rúmlega 100 á einstaklingsmarkaði í 9 sem varð til þess að öll samskipti við viðskiptavini urðu markvissari ásamt því að það dró verulega úr flækjustig í rekstri. Neytendavörumerkið Sýn var kynnt á markað 12. júní 2025 og vakti strax mikla athygli og í dag þekka yfir 92% landsmanna vörumerkið aðeins hálfu ári eftir endurmörkun.

Árs- & sjálfbærniskýrsla 2025