
Tímamótaár að baki
Árið 2025 markaði tímamót í starfsemi Sýnar. Félagið gekk í gegnum umfangsmikla endurmörkun, einfaldaði vöruframboðið og með skýrari heildarsýn var lagður grunnur að sterkari og samræmdari ásýnd félagsins. Endurkoma enska boltans, ásamt öflugri innlendri dagskrárgerð og sterkum fókus á íslenskt hágæða sjónvarpsefni, styrkti enn frekar stöðu Sýnar í hugum landsmanna.
Sýn gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi og hefur frá upphafi lagt áherslu á virka þátttöku og samfélagslegt framlag. Viðskiptavinurinn er ávallt í forgrunni og endurspeglast það skýrt í verkefnum og forgangsröðum á árinu. Í eftirfarandi yfirferð er litið til helstu viðburða og árangurs ársins 2025.

Endurmörkun Sýnar
Þín sýn er okkar Sýn
Á árinu 2025 tók Sýn stórt og metnaðarfullt skref í sameiningu miðla- og fjarskiptastarfssemi þegar vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport voru sameinuð undir merkjum Sýnar. Með þessum breytingum var unnið markvisst að því að einfalda ásýnd og vöruframboð félagsins, samræma þjónustu og bæta heildarupplifun viðskiptavina. Endurmörkun Sýnar var formlega kynnt starfsfólki á starfsmannafundi í Egilshöll 11. júní 2025. Undirbúningur fór fram í miklum trúnaði og var unnið af krafti dag og nótt síðustu dagana fyrir opinbera kynningu. Viðamikil vinna fór fram við að uppfæra merkingar og ásýnd félagsins um allt húsnæði og á helstu snertiflötum. Þegar starfsfólk mætti til vinnu daginn eftir blasti nýtt útlit Sýnar við, þar sem fyrri merki höfðu vikið fyrir sameinuðu vörumerki. Endurmörkunin fékk víðtæka fjölmiðlaumfjöllun og vakti töluverða athygli á markaði.

Herferð
Sögulegur samruni
Í kjölfar endurmörkunar Sýnar var sett af stað umfangsmikil kynningarherferð til að kynna Sýn sem sameinað vörumerki félagsins. Handrit auglýsingarinnar var unnið með auglýsingastofunni ENNEMM og í samstarfi við Auðunn Blöndal og Steinþór Hróar, og tóku um 40 starfsmenn Sýnar þátt í gerð hennar. Þar var lögð áhersla á að sýna samheldni og sameiningu starfseminnar undir merkjum Sýnar.
Herferðin fékk afar jákvæð viðbrögð og vakti mikla athygli. Auglýsingaeftirtekt mældist hæst 48%, sem er sögulega hátt hlutfall hjá félaginu og sérstaklega sterkur árangur fyrir nýtt vörumerki. Niðurstöðurnar staðfesta að auglýsingaherferðin skilaði markmiðum sínum og styrkti stöðu Sýnar á markaði.



Ný rödd Sýnar
Í kjölfar sameiningar Vodafone og Stöðvar 2 var ákveðið að velja nýja rödd Sýnar til að endurspegla sameinað félag og nýja stefnu.
Björgvin Halldórsson hafði verið rödd Stöðvar 2 frá stofnun þess árið 1986 og því skipað veigamikinn sess í vitund landsmanna. Aldís Amah hafði jafnframt verið rödd Vodafone síðustu tvö ár. Að prufum loknum var Björn Stefánsson fenginn til að taka við keflinu sem rödd Sýnar.
Með því tekur Björn við hlutverki sem felur í sér að feta í stór fótspor. Hann talar nú fyrir vörumerkið í auglýsingum, dagskrártilkynningum og símsvörun félagsins og gegnir þar lykilhlutverki í áframhaldandi þróun og samræmingu í miðlun og ásýnd Sýnar.

Góður - Betri - Bestur
Einfaldara og skýrara vöruframboð var eitt af lykilmarkmiðum ársins og tók Sýn stórt skref í þeirri vegferð þegar nýtt pakkaframboð var kynnt þar sem pökkum var fækkað úr rúmlega 100 niður í 9 vel skilgreinda pakka. Með breytingunni verður valið auðveldara fyrir viðskiptavini og samskipti því markvissari, samhliða því sem flækjustig í rekstri minnkar verulega. Nýju pakkarnir styðja við þá stefnu Sýnar að bjóða upp á einfaldari og skilvirkari lausnir.



Enski snýr aftur
Heimkoma enska boltans vakti mikla eftirvæntingu og var farið af stað af krafti undir yfirskriftinni „Enski boltinn hefur aldrei verið stærri“, sem endurspeglar metnaðarfulla umgjörð og aukna áherslu á vandaða dagskrárgerð.
Fyrsti leikurinn var sýndur 15. ágúst og var upphafinu fagnað innan félagsins með sérstökum viðburði. Mikill metnaður hefur verið lagður í alla umfjöllun um deildina og eru allir leikir sýndir í beinni útsendingu. Valdir stórleikir njóta veglegrar upphitunar og uppgjörs úr sjónvarpssal og sérstakir þættir á borð við DocZone, Varsjána, Big Ben og Messuna, auk umfjöllunar með Kristjönu Arnars, styrkja heildarumgjörðina enn frekar.
Umgjörð og framsetning enska boltans hefur aldrei verið öflugri hjá félaginu og viðtökur áhorfenda staðfesta að enska úrvalsdeildin skipar stóran sess í íþróttalífi landsmanna.

SÝN fyrir alla
Nýr kafli hófst í íslenskri sjónvarpssögu þann 1. ágúst þegar SÝN línulega sjónvarpsstöðin, áður Stöð 2, var gerð aðgengileg öllum landsmönnum án endurgjalds. Með þessari breytingu tók Sýn næsta skref í vegferðinni sem hófst með samruna Vodafone og Stöðvar 2 undir merkjum Sýnar og mætir breyttum áhorfsvenjum. Samhliða var lögð áhersla á að styrkja streymisveituna SÝN+ þar sem áskrifendur fá sveigjanlegt aðgengi, forskot á sæluna þegar kemur að nýrra efni og aðgang að efni sem ekki er sýnt á hefðbundinni dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar, heldur er eingöngu aðgengilegt í streymisveitunni.



Hlustendaverðlaunin
Hlustendaverðlaun 2025 fóru fram með pompi og prakt á Nasa við Austurvöll, í tólfta sinn frá upphafi. Verðlaunin eru sameiginlegt verkefni útvarpsstöðva Sýnar, Bylgjunnar, FM957 og X977 og hafa fest sig í sessi sem mikilvæg uppskeruhátíð íslenskrar tónlistar. Hlustendaverðlaunin endurspegla vel það hlutverk sem útvarpsmiðlar Sýnar gegna í íslensku menningarlífi, bæði með því að styðja við innlenda tónlistarsköpun og með því að skapa vettvang þar sem rödd hlustenda ræður úrslitum.

Nýr kafli í farsímadreifikerfum
Á árinu 2025 seldi Sýn 4G og 5G farsímadreifikerfi sín til Sendafélagsins, sem er í eigu Sýnar og Nova. Með sölunni færðist rekstur og uppbygging farsímainnviða yfir til Sendafélagsins, sem mun annast dreifingu farsímaþjónustu fyrir félögin. Með þessari breytingu var stigið mikilvægt skref í átt að einfaldari rekstri og aukinni hagkvæmni, samhliða því að tryggja áframhaldandi öfluga farsímaþjónustu fyrir viðskiptavini.



360 myndataka Já
Á árinu fór 360° myndabíll Já um landið og safnaði myndum af helstu stöðum, með sérstaka áherslu á hverfi og svæði þar sem uppbygging er mikil. Þetta var sjöunda sumarið sem Já stendur fyrir slíkri myndatöku, en fyrsta ferðin var farin sumarið 2013.
Við verkefnið er notaður sérhæfður hugbúnaður og bíllinn búinn fastri 360° myndavél. Öll myndagögn eru skráð með GPS-hnitum og tengd kortavef Já.is. Nýju myndirnar voru birtar á kortavefnum yfir vetrarmánuðina og fengu 137.326 skráningar og 56.143 heimilisföng nýjar forskoðunarmyndir á skráningum sínum.
360° myndir Já hafa með tímanum orðið mikilvægur hluti af stafrænum innviðum félagsins og gegna sífellt stærra hlutverki í leit og upplýsingaleit notenda um allt land.

Menningarnæturtónleikar Bylgjunnar
Menningarnæturtónleikar Bylgjunnar í Hljómskálagarði voru einn stærsti og mest sótti viðburður ársins hjá stöðinni. Hljómskálagarðurinn fylltist af tónlist og gleði þegar fram komu Herra Hnetusmjör, Klara Einars, Skítamórall, GDRN, Júlí & Dísa, Vibe og Nýdönsk.
Tónleikarnir hafa fest sig í sessi sem hápunktur Menningarnætur og sýna kraft Bylgjunnar sem öflugs vettvangs íslenskrar tónlistar.



Besta íslenska vörumerkið
Á árinu 2025 hlaut Sýn tilnefningu sem Besta íslenska vörumerkið samkvæmt úttekt Brandr. Tilnefningin staðfestir sterka stöðu vörumerkisins og þann árangur sem náðst hefur í markvissu markaðs- og vörumerkjastarfi á árinu. Hún fellur vel að öðrum viðurkenningum og góðum árangri samstæðunnar og endurspeglar samstillt átak starfsfólks í að byggja upp skýra og sýnilega ímynd Sýnar.

Sýn hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar
Á árinu 2025 var Sýn á meðal þeirra fyrirtækja sem fengu viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA, sem miðar að auknu jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar. Þetta er þriðja árið í röð sem Sýn nær þessum árangri og endurspeglar hann markvissa vinnu við að byggja upp fjölbreyttan og jafnan mannauð. Áhersla á jafnrétti, virðingu og tækifæri fyrir alla er áfram leiðarljós í mannauðsstefnu Sýnar.



SÝNum stuðning
Í tilefni af Bleikum október stóð Sýn fyrir samfélagsverkefninu SÝNum stuðning. Markmið verkefnisins var að styðja við mikilvægt málefni í samfélaginu með sölu á sérhönnuðum brjóstabolum, þar sem allur ágóði sölunnar rann til Bleiku slaufunnar. Starfsfólk Sýnar tók virkan þátt í verkefninu sem naut góðrar þátttöku almennings. Verkefnið skapaði sýnilega samstöðu og endurspeglar áherslur Sýnar á samfélagslega ábyrgð, að láta gott af sér leiða og styðja við mikilvægt heilbrigðismál.

Sterkt ár hjá Bylgjunni
Árið 2025 var mjög sterkt ár hjá Bylgjunni samkvæmt rafrænum ljósvakamælingum Gallup. Stöðin var með yfirburðastöðu hvað varðar hlustun og átti meirihluta mest hlustuðu klukkustunda ársins, bæði í aldurshópnum 12–80 ára og 18–49 ára. Í fyrstu mælingum ársins náðu Bylgjan, Gull Bylgjan og Létt Bylgjan samanlagt nær 50% hlutdeild í aldurshópnum 12–49 ára. Árangurinn undirstrikar sterka stöðu útvarpsstöðvanna innan samstæðu Sýnar, bæði hvað varðar vinsældir meðal hlustenda og sem öflugir auglýsingamiðlar.



Fréttir í takt við breytta tíma
Undir lok árs 2025 voru gerðar breytingar á fréttaframboði Sýnar þegar ákveðið var að hætta útsendingu kvöldfrétta í sjónvarpi um helgar. Breytingin er liður í áframhaldandi þróun á frétta- og miðlastefnu félagsins, þar sem aukin áhersla er lögð á stafræna miðlun og sveigjanlegt aðgengi að efni.
Fréttastofa Sýnar heldur áfram að sinna öflugri fréttaþjónustu á virkum dögum og á stafrænum miðlum, þar sem neytendur sækja í auknum mæli efni sitt. Með breytingunni er markmiðið að nýta krafta og fjármagn á skilvirkari hátt og mæta breyttum neysluvenjum áhorfenda.

Bylgjulestin á ferð um landið
Bylgjulestin hélt áfram ferð sinni um landið og heimsótti fjölmarga staði sem og viðburði þar sem hlustendur komu saman. Fyrsta stopp var í Hveragerði á Hengli Ultra, þaðan lá leiðin til Akureyrar á Bíladaga, Hallormstaðarskóg, Írska daga á Akranesi, Kótelettuna á Selfossi, Götubitahátíðina í Hljómskólagarðinum, Hjarta Hafnarfjarðar og sumrinu var svo lokað í Vaglaskógi á tónlistarhátíð Kaleo, Vori í Vaglaskógi. Bylgjulestin færði útvarpið nær fólki með beinum útsendingum og góðri stemningu víðs vegar um landið og er orðinn fastur og vinsæll hluti af sumrinu hjá Bylgjunni.



Sýn á Mannauðsdeginum
Sýn tók þátt í Mannauðsdeginum í Hörpu árið 2025 þar sem félagið var með áberandi bás sem umbreytt var í huggulega „stofu“ skreytta með sjónvarpsefni Sýnar. Gestum ráðstefnunnar var boðið upp á popp, gos og fría prufuáskrift og fengu þannig að upplifa þjónustuna á lifandi og aðgengilegan hátt. Markmið þátttökunnar var að vekja athygli á þeim ávinningi sem felst í að bjóða starfsfólki afþreyingu í formi áskriftar að sjónvarpspökkum Sýnar sem hluta af fríðindum. Viðtökur voru góðar og skapaðist dýrmætt samtal um leiðir til að efla starfsánægju og vellíðan á vinnustöðum.

Miðlar Sýnar aldrei vinsælli
Á árinu 2025 varð umtalsverð aukning í áhorfi á sjónvarpsstöðvar Sýnar. Gögn Gallup sýna að daglegt áhorf hefur aukist um 48% samanborið við sama tímabil á fyrra ári, eftir að enski boltinn var tekinn inn í dagskrána og línuleg dagskrá opnuð í ágúst. Þetta endurspeglar bæði vaxandi áhuga almennings á sjónvarpsefni félagsins og styrk í dagskrárvali sem nær til fjölbreyttra hópa landsmanna. Viðmiðunarupplýsingar benda til þess að 67 þúsund manns horfi daglega á sjónvarpsstöðvar Sýnar, auk þess sem auglýsingasala og vörumerkjavitund hefur fylgt þessari auknu neyslu.
Þessi árangur undirstrikar hvernig stefna Sýnar um að efla sjónvarpsútsendingar og nýta íþróttaviðburði sem þátt í dagskrárgerð hefur skilað sér í auknum sýnileika og virku áhorfi meðal borgara.



Öflugri farsímainnviðir fyrir framtíðina
Á árinu 2025 var unnið að umfangsmikilli uppbyggingu og styrkingu farsímakerfa. Byggðir voru upp yfir þrjátíu nýir sendar og afkastageta fjölda senda aukin til að mæta vaxandi gagnanotkun. Eitt stærsta verkefni ársins var uppsetning á gríðarlega öflugu 5G kerfi í Leifsstöð. Einnig var mikil áhersla lögð á útfösun 3G-tækninnar og er þeirri vinnu nær lokið, auk þess sem útfösun 2G lauk sumarið 2025.

Öflug innlend dagskrárgerð
Á árinu 2025 stóð Sýn að fjölbreyttri og metnaðarfullri innlendri dagskrárgerð sem hlaut afar góðar viðtökur meðal áhorfenda. Á meðal verkefna ársins voru nýjar seríur af vinsælum þáttaröðum eins og Alheimsdraumurinn, Ísskápastríð, Kviss, Heimsókn, Gulli byggir, Halló heimur og Flugþjóðin en þessir þættir njóta mikilla vinsælda á meðal áskrifenda. Nýjar þáttaseríur litu líka dagsins ljós og þar má meðal annars nefna Spurningasprett, A&B - þættir sem fjölluðu um tvíburabræðurna Arnar og Bjarka, Hristur en ekki hrærður, Séð & heyrt, Blóðbönd, Gott kvöld, Tilbrigði um fegurð, Stóra stundin og Brjánn. Heimildamyndin Fjallið það öskrar var frumsýnd á árinu sem enginn má láta fram hjá sér fara. Dagskráin endurspeglar skýra stefnu Sýnar um að tryggja áhorfendum aðgang að vönduðu og fjölbreyttu íslensku efni og styrkja stöðu félagsins sem leiðandi afl í innlendri afþreyingu.


Metáhorf á Bakgarðshlaupið
Vísir sýndi Bakgarðshlaupið í Öskjuhlíð í beinu streymi 10. maí 2025, samhliða beinni textalýsingu. Alls hófu 203 keppendur keppni og stóð útsendingin fram á nótt. Kristinn Gunnar Kristinsson sigraði eftir 43 hringi og lauk keppni kl. 03:45 aðfaranótt 12. maí.
Yfir 70 þúsund manns fylgdust með Bakgarðshlaupinu í september í beinu streymi en útsendingin stóð samfellt frá laugardagsmorgni til mánudagsmorguns.
Að baki útsendingunni stóð reynslumikið teymi ásamt fréttastofu Vísis sem sinnti ítarlegri umfjöllun á meðan á keppni stóð, bæði á Vísi, Bylgjunni og í kvöldfréttum.


