Efnahagur og sjóðsstreymi
Fastafjármunir lækka um 1.094 m.kr. á milli ára. Leigueignir hækka um 146 m.kr. Veltufjármunir hækka um 906 m.kr. á milli ára sem skýrist að mestu af hækkun viðskiptakrafna um 1.022 m.kr. en þar inni var krafa á Sendafélagið vegna kaupa þess á eignum af félaginu. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 26,1% í árslok samanborið við 27,9% árið áður. Langtímaskuldir lækka um 126 m.kr. á milli ára. Leiguskuldbindingar í heild hækka um 151 m.kr. Vaxtaberandi langtímaskuldir lækka um 335 m.kr. á milli ára og skammtímaskuldir lækka um 1.412 m.kr

Hreinar vaxtaberandi skuldir námu 19.098 m.kr. í árslok 2025 og var hlutfall þeirra á móti EBITDA hagnaði 4,06.

Heildareignir samstæðunnar námu 31.050 m.kr. í árslok og lækkuðu um 0,6% á milli ára.

Rekstrarfjárfestingar námu 940 m.kr. á árinu 2025 og lækkuðu um 45,6% á árinu þar sem fjárfestingaþörf í fjarskiptainnviðum var minni á árinu, m.a vegna Sendafélagsins.

Frjálst fjárflæði félagsins á árinu 2025 var 1.319 m.kr. samanborið við 1.584 m.kr. árið 2024

í lok ársins 2025 var eigið fé 8.050 m.kr. og eiginfjárhlutfall 26,1%. Útistandandi hlutafé í lok tímabilsins nam 2.476 m.kr.