Tvöföld mikilvægisgreining
Tvöfalda mikilvægisgreining (e. Double Materiality) Sýnar var uppfærð á árinu með aðstoð utanaðkomandi ráðgjafa þar sem viðfangsefnin voru endurmetin og áherslum fækkað. Greiningin skiptist í umhverfisþætti, félagslega þætti og stjórnarhætti (UFS) og nær til samtals 14 viðfangsefna. Af þeim voru átta metin sem hvað mikilvægust fyrir starfsemi félagsins með hliðsjón af áhættu, áhrifa og tækifæra tengdum sjálfbærni.
Aðlögun og mildun loftlagsbreytinga var sameinað í eitt viðfangsefni en auk þeirra fengu orka, hringrásarhagkerfi, heilsa og öryggi, áhrif upplýsinga á neytendur og endanotendur, fyrirtækjamenning og birgjatengsl viðfangsefnin mest vægi í tvöföldu mikilvægisgreiningunni.
Sjá má vægi þeirra á neðangreindri mynd.
