
Stjórnarhættir
Með yfirlýsingu þessari um stjórnarhætti Sýnar hf. er félagið að fylgja þeim viðurkenndu leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland (6. útgáfa leiðbeininganna frá 2. febrúar 2021), með það að markmiði að styrkja innviði Sýnar hf. og auka gagnsæi.

Lög og reglur
Stjórnarhættir Sýnar hf. taka mið af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, lögum nr. 3/2006 um ársreikninga, lögum nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, lögum nr. 70/2022 um fjarskipti, lögum nr. 38/2011 um fjölmiðla og öðrum almennum lögum sem gilda um starfsemina. reglum um útgefendur fjármálagerninga, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar, sem og einstakra undirnefnda stjórnar. Lögin má nálgast á vef Alþingis, www.althingi.is, en samþykktir og reglur félagsins á www.syn.is.
Félagið fylgir leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem hægt er að nálgast á slóðinni www.leidbeiningar.is. Sýn hf. hefur einnig fengið vottað og staðfest að stjórnkerfi fyrirtækisins fyrir upplýsingaöryggi samræmist alþjóðlega upplýsingaöryggisstaðlinum ISO 27001 og íslenska jafnlaunastaðlinum ÍST 85. Fyrirtækið hefur fengið Hvatningarverðlaun jafnréttismála og viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar en markmið hennar er að auka jafnvægi kynjanna í efstu lögum skipulagsheilda.
Stjórn Sýnar hf. 2025
Í stjórn Sýnar sitja öllu jöfnu fimm aðalmenn og tveir varamenn og eru þeir allir kosnir á aðalfundi félagsins til eins árs í senn. Forstjóri situr stjórnarfundi, auk lögmanns félagsins sem er ritari stjórnar. Þá er framkvæmdastjóri fjármálasviðs reglulegur þátttakandi á stjórnarfundum. Stjórn félagsins ásamt forstjóra fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli hluthafafunda og ber meginábyrgð á rekstri þess. Stjórnin hefur lögbundnu hlutverki að gegna sem henni ber sjálfri að annast nema heimild sé veitt í lögum til að framselja valdið með umboði.
Á árinu 2025 voru bókaðir 22 formlegir stjórnarfundir. Góð mæting stjórnarmanna var á stjórnarfundi og var stjórn ákvörðunarbær á öllum fundum ársins. Sama gildir almennt um mætingu og ákvörðunarbærni á fundum undirnefnda stjórnar.
Á aðalfundi þann 14. mars 2025 var kosið í aðal- og varastjórn félagsins. Á fundinum voru þau: Hákon Stefánsson, Páll Gíslason, Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, Ragnar Páll Dyer og Heiðrún Lind Marteinsdóttir kjörin í stjórn félagsins. Daði Kristjánsson og Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir voru kjörin varamenn.
Í árslok 2025 var stjórn Sýnar hf. skipuð eftirfarandi aðilum:

Stjórnarformaður
Hákon Stefánsson
Hákon Stefánsson, stjórnarformaður, er fæddur árið 1972. Hann lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1998 og er með réttindi til málflutnings fyrir Landsrétti. Hann hefur frá árinu 2019 starfað sem forstjóri InfoCapital ehf. Áður var hann meðeigandi Lögmanna Mörkinni 2018-2019. Þá gegndi hann ýmsum störfum á árunum 2006-2018 fyrir Creditinfo Group, svo sem starfi framkvæmdastjóra á Íslandi, framkvæmdastjóra lögfræðisviðs og alþjóðamarkaða, sem og starfi aðstoðarforstjóra. Hann átti sæti í framkvæmdastjórn Intrum Justitia á árunum 2002-2006, var bæjarlögmaður á Akureyri 2000-2002 og starfaði sem löglærður fulltrúi á Lögfræðistofu Reykjavíkur 1998-2000. Hákon situr og hefur setið í stjórnum fjölmargra innlendra og erlenda fyrirtækja auk þess að sitja í stjórnum opinberra stofnana og fyrirtækja. Félög tengd Hákoni, þ.e. Íslex ehf., InfoCapital ehf. og Gavia Invest ehf., fara með 61.147.128 hluti í Sýn hf.



Varaformaður stjórnar
Petrea Ingileif Guðmundsdóttir
Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, varaformaður stjórnar, er fædd árið 1974. Hún á að baki langa reynslu sem stjórnandi og sérfræðingur hjá fjarskipta- og afþreyingarfyrirtækjum, starfaði m.a. sem framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu- og markaðssviðs 365 árin 2014 til 2016 og sem forstjóri Tals 2013 til 2014. Hún starfaði einnig sem framkvæmdastjóri markaðssviðs Símans og markaðsstjóri Símans og Skjás Eins. Petrea Ingileif hefur lokið BS prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Petrea Ingileif situr í dag í stjórnum Ósa, Icepharma, Daga og Allianz á Íslandi ásamt því að sinna ráðgjafastörfum.
Petrea sat einnig í stjórn Sýnar frá árinu 2020 til 2022, sem varaformaður stjórnar frá árinu 2021 til 2022 og formaður stjórnar frá ágúst til október árið 2022. Petrea var formaður stjórnar Símafélagsins frá árinu 2017 til 2018, fram að því að félagið var selt til Nova. Petrea sat í stjórn Terra frá árinu 2017 til 2024. Petrea Ingileif á ekki eignarhlut í félaginu.

Stjórnarmaður
Heiðrún Lind Marteinsdóttir
Heiðrún Lind Marteinsdóttir er fædd árið 1979. Hún hefur starfað sem lögmaður með megin áherslu á sviði stjórnarhátta, félaga-, samkeppnis-, fjarskipta- og verðbréfamarkaðsréttar. Heiðrún hefur einnig lokið prófi í verðbréfamiðlun. Hún var einn eigenda LEX lögmannsstofu til ársins 2016. Hún þekkir því vel þau lögfræðilegu svið sem tengjast starfsemi Sýnar. Heiðrún Lind sat um tíma í stjórn Ríkisútvarpsins ohf. og stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Hún er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og situr auk þess í stjórn Samtaka atvinnulífsins og Sjóvá-Almennra líftrygginga hf. Hún hefur því víðtæka þekkingu á sviði rekstrar, vinnumarkaðar, efnahagsmála og stjórnsýslu. Heiðrún á 2.000.000 eignarhluti í félaginu í gegnum einkahlutafélag sitt Módel 79 ehf.



Stjórnarmaður
Páll Gíslason
Páll Gíslason er fæddur árið 1976. Hann er rafmagns- og tölvuverkfræðingur og hefur mest allan sinn feril starfað við nýsköpun á ýmsum sviðum, m.a. við fjarskipti, markaðsviðskipti, fjártækni og hljóðtækni. Hann starfaði í tæp 20 ár á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, lengst af sem forstjóri og meðstofnandi World Financial Desk (WFD) í Bandaríkjunum, en í framhaldi af því sem sjóðsstjóri hjá Crabel Capital Management og síðar sem forstöðumaður markaðsviðskipta hjá Jiko Group. Páll starfar í dag sem framkvæmdastjóri IDER ehf. Páll hefur setið í stjórn Sýnar frá 2021 og situr einnig í stjórn ALM Verðbréfa.

Stjórnarmaður
Ragnar Páll Dyer
Ragnar Páll Dyer er fæddur árið 1977. Hann lauk Stanford Executive Program frá Stanford Háskóla 2019 og BSc gráðu í rekstrarverkfræði með áherslu á fjármál frá Háskólanum í Reykjavík 2008. Hann hefur frá 2023 starfað sem framkvæmdastjóri hjá InfoCapital ehf. en áður starfaði Ragnar í 16 ár á fjármálamarkaði innan Kviku samstæðunnar nú seinast sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs og stjórnarmaður í TM Tryggingum hf. og Kviku Securities í London. Þar áður starfaði Ragnar við upplýsingatækni sem stjórnarmaður í dótturfélögum og framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Creditinfo Group og sem deildarstjóri vefþróunar hjá Símanum. Ragnar situr og hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtæki bæði á Íslandi og erlendis. Félög tengd Ragnari, þ.e. InfoCapital ehf., Gavia Invest ehf. og H33 Invest ehf. fara með 58.147.128 hluti í Sýn hf.

Allir stjórnarmenn félagsins teljast vera óháðir félaginu, viðskiptaaðilum, og samkeppnisaðilum. Þeir Hákon Stefánsson og Ragnar Páll Dyer teljast háðir stórum hluthöfum félagsins í skilningi leiðbeininga um góða stjórnarhætti.
Varamenn stjórnar
Varamenn stjórnar eru þau Daði Kristjánsson og Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir.
Helsta hlutverk stjórnar:
Meginhlutverk stjórnar Sýnar hf. er að marka félaginu stefnu og hafa eftirlit með framkvæmd hennar. Kjarni stefnunnar er að hagsmunir viðskiptavina, eigenda og starfsmanna séu hafðir að leiðarljósi. Áhersla er lögð á traustan og arðbæran rekstur og að rekstraráhætta sé lágmörkuð.
Gæta þess að starfsemi félagsins sé í samræmi við tilgang þess samkvæmt samþykktum og markaðri stefnu.
Taka ákvarðanir í málum sem telja verður óvenjuleg eða mikilsháttar.
Gæta þess að skipulag félagsins og starfsemi sé jafnan í góðu horfi, t.d. hvað varðar reikningsskil, innra eftirlit og fjárhagsáætlanir.
Sjá til þess að nægilegt eftirlit sé haft með reikningshaldi og meðferð fjármuna félagsins.
Ráða forstjóra og eftir atvikum veita honum lausn.
Starfsreglur stjórnar
Núgildandi starfsreglur stjórnar voru samþykktar af stjórn þann 28. apríl 2025. Starfsreglurnar samræmast leiðbeiningum um góða stjórnarhætti.
Árangursmat stjórnar
Stjórn félagsins framkvæmdi formlegt árangursmat þann 22. janúar 2026. Helstu þættir sem lagt var mat á voru:
Störf stjórnar, verklag og starfshættir.
Virkni stjórnar.
Frammistaða stjórnarformanns og forstjóra.
Undirnefndir stjórnar.
Þróun félagsins.
Undirnefndir stjórnar
Í endurskoðunarnefnd Sýnar hf. sitja allt að þrír nefndarmenn skipaðir af stjórn félagsins til eins árs í senn. Nefndin hefur sett sér starfsreglur sem yfirfarnar eru og bornar upp til staðfestingar í stjórn árlega, síðast þann 28. apríl 2025. Nefndin skal m.a. hafa eftirfarandi hlutverk án tillits til ábyrgðar stjórnar, stjórnenda eða annarra á þessu sviði:
Eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila.
Eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits félagsins, áhættustýringu og annarra eftirlitsaðgerða er varðar fjármál ásamt því að fylgja eftir úrbótum vegna annmarka sem fram koma.
Hafa eftirlit með og yfirfara endurskoðun ársreikninga, samstæðureikninga og annarra fjárhagsupplýsinga félagsins.
Mat á óhæði ytri endurskoðenda og eftirlit með öðrum störfum ytri endurskoðenda.
Setja fram tillögu til stjórnar um val á ytri endurskoðendum.
Endurskoðunarnefnd yfirfer einnig stjórnarháttayfirlýsingu félagsins ár hvert. Endurskoðunarnefnd skal skila skýrslu um störf sín til stjórnar árlega.
Við árslok 2025 voru í endurskoðunarnefnd Sýnar hf. Erik Ingvar Bjarnason, formaður, Ragnar Páll Dyer og Páll Gíslason. Nefndin fundaði reglubundið á árinu í tengslum við árs- og árshlutareikninga. Allir nefndarmenn eru óháðir endurskoðendum Sýnar hf. og daglegum stjórnendum. Ragnar Páll Dyer telst háður stórum hluthöfum í skilningi leiðbeininga um góða stjórnarhætti.
Í starfskjaranefnd Sýnar hf. sitja allt að þrír nefndarmenn og eru skipaðir af stjórn félagsins til eins árs í senn. Starfskjaranefnd hefur sett sér starfsreglur, sem voru staðfestar síðast þann 28. apríl 2025. Starfskjaranefnd útbýr starfskjarastefnu Sýnar hf. Hlutverk nefndarinnar er að öðru leyti m.a. að undirbúa tillögur til stjórnar varðandi laun og aðrar greiðslur til forstjóra og annarra æðstu stjórnenda og lykilstjórnenda félagsins, svo og stjórnarmanna þess. Nefndinni er ætlað að tryggja að laun og önnur starfskjör séu í samræmi við lög, reglur og bestu framkvæmd hverju sinni. Þá er henni ætlað að taka sjálfstæða afstöðu til áhrifa launa á áhættutöku og áhættustýringu félagsins í samráði við endurskoðunarnefnd félagsins.
Við árslok 2025 var starfskjaranefnd Sýnar hf. skipuð þeim Hákoni Stefánssyni og Petreu Ingileifu Guðmundsdóttur. Starfskjaranefnd félagsins leggur áherslu á að gagnsæi ríki um starfskjör hjá félaginu gagnvart hluthöfum þess og hefur fylgst með óskum hluthafa um aukið gagnsæi og unnið í því að bæta upplýsingar bæði í ársreikningi og í skýrslu starfskjaranefndar. Starfskjaranefnd fundaði með óreglubundnum hætti á árinu 2025. Petrea telst óháð félaginu og stórum hluthöfum en Hákon telst háður stórum hluthöfum í skilningi leiðbeininga um góða stjórnarhætti.
Tilnefningarnefnd Sýnar hf. hefur sett sér starfsreglur sem hafa verið staðfestar á aðalfundi félagsins. Á aðalfundi árið 2024 var samþykkt sú breytingu á skipan tilnefningarnefndar stjórnarmaður eigi ekki sæti í tilnefningarnefnd. Þess í stað skipi stjórn tengilið úr sínum röðum við tilnefningarnefnd í því skyni að tengsl stjórnar og tilnefningarnefndar rofni ekki. Hina tvo nefndarmennina skuli hluthafafundur Sýnar hf. kjósa ef stjórnarkjör er á dagskrá. Á aðalfundi félagsins árið 2025 var þetta breytta fyrirkomulag staðfest og fram fór kjör tveggja nefndarmanna í samræmi við starfsreglurnar, en leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland, geyma tilmæli um starfsemi tilnefningarnefnda.
Tilnefningarnefnd er ætlað að auka líkur á því að stjórn félagsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu og þekkingu stjórnarmanna félagsins sem og að tryggja aukið gagnsæi í málefnum varðandi tilnefningu stjórnarmanna.
Við árslok 2025 var tilnefningarnefnd Sýnar hf. skipuð Þresti Olaf Sigurjónssyni, formanni nefndarinnar og Guðríði Sigurðardóttir. Heiðrún Lind Marteinsdóttir er tengiliður stjórnar við tilnefningarnefnd. Eru þau öll óháð félaginu og daglegum stjórnendum þess. Tilnefningarnefnd hélt fjölda funda á starfsárinu, einkum með hluthöfum en jafnframt með stjórnendum félagsins.
Starfsreglur undirnefnda eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins, www.syn.is. Jafnframt er að finna upplýsingar um skipan og hlutverk undirnefnda á vefsíðu félagsins.

Forstjóri Sýnar hf.
Herdís Dröfn Fjeldsted er forstjóri félagsins og tók til starfa í janúar 2024.

Framkvæmdastjórn Sýnar hf. 2025
Forstjóri og framkvæmdastjórar mynda framkvæmdastjórn félagsins og ber hún ábyrgð á daglegum rekstri þess og fylgni við rekstraráætlanir. Framkvæmdastjórn hittist einu sinni í viku og oftar ef þurfa þykir. Við árslok 2025 skipuðu eftirtaldir aðila framkvæmdastjórn félagsins:

Eðvald Ingi Gíslason, framkvæmdastjóri fjármála, Páll Ásgrímsson, aðallögfræðingur, Gunnar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri upplýsingatækni, Guðmundur Halldór Björnsson, framkvæmdastjóri Sölu- og markaðsmála, Sigurbjörn Eiríksson, framkvæmdastjóri innviða, Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, framkvæmdastjóri miðla og efnisveitna og Valdís Arnórsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og mannauðs.