
Ávarp forstjóra og stjórnarformanns
Kjarnareksturinn styrkist ár frá ári
Árið 2025 var krefjandi í rekstri Sýnar, en ákvarðanir sem teknar voru á árinu munu auðvelda til muna yfirsýn og áætlanagerð, renna styrkari stoðum undir reksturinn og móta fyrirtækið til lengri tíma litið.
Unnið var að þeim markmiðum sem ákveðin voru eftir mikla stefnumótunarvinnu á haustmánuðum 2024, en þar var megináherslan lögð á að styrkja grunnrekstur fyrirtækisins, einfalda starfsemina og skapa forsendur sjálfbærs reksturs til framtíðar.

Í heild gekk vel að hrinda meginþáttum stefnunnar í framkvæmd og mörgu grettistaki var lyft. Hins vegar ber að hafa í huga að stefnumörkunin er til þriggja ára og enn er verk að vinna. Eins kom á daginn að umfang breytinganna gerði áætlanagerð og mat á tímasetningu tekjufærslu erfiðari en áætlað var.
Á árinu voru teknar stórar rekstrarlegar ákvarðanir, þ.á m. um að selja 4G og 5G dreifikerið til Sendafélagsins, fækka vöruflokkum félagsins úr yfir hundrað í sex skýra valkosti og ráðast í endurmörkun félagsins. Framkvæmd þessara breytinga gekk vel og megináherslur stefnunnar náðu fram að ganga. Frávik frá markmiðum ársins skýrðust hins vegar að mestu af þróun auglýsingatekna og lægri tekjum af hlutanetslausnum (IoT) sem reyndust undir upphaflegum áætlunum.
Sýn byggir á sterkri arfleifð í fjarskiptum og fjölmiðlum en starfsemi félagsins hafði þróast í flókið samspil eininga, vöruframboðs og tekjustrauma sem gerði yfirsýn og forgangsröðun erfiðari en æskilegt var. Í lok árs 2024 var því tekin stefnumótandi ákvörðun um að sameina starfsemi félagsins undir einu vörumerki, Sýn, með það að markmiði að einfalda uppbyggingu, bæta yfirsýn og leggja grunn að skýrari rekstrarstjórnun. Endurmörkun Sýnar og einföldun vöruúrvals byggði á víðtækri þátttöku starfsfólks með áherslu á einfaldari lausnir og heildræn viðskipti til að styðja við skilvirkari rekstur til lengri tíma, en aðalatriðið var að gera vöruframboðið gagnsærra og bæta gæði þjónustunnar við viðskiptavini okkar.
Mikilvægur áfangi í þessari vegferð var að félagið setti fram starfsþáttayfirlit sem gerði stjórnendum kleift að greina afkomu einstakra starfssviða á markvissan og samanburðarhæfan hátt. Þetta hefur styrkt ákvarðanatöku, aukið gagnsæi og skapað betri forsendur fyrir forgangsröðun verkefna og fjármagns. Á grundvelli þessa hefur jafnframt verið unnt að leggja skýrara mat á þróun kjarnarekstrar félagsins milli ára óháð áhrifum af hlutaneti (IoT) og innviðasölu sem hvoru tveggja hafði veruleg áhrif á tekjur og afkomu félagsins á ákveðnu tímabili. Slíkur samanburður sýnir að undirliggjandi rekstur hefur styrkst jafnt og þétt og var fjórði ársfjórðungur 2025 einn sá besti í kjarnarekstri félagsins frá árinu 2019.
Með bættri yfirsýn hefur jafnframt orðið skýrara hvaða þættir starfseminnar búa við krefjandi markaðsaðstæður, þ.á m. fjölmiðlarekstur sem stjórn félagsins hefur tekið til stefnumótandi endurskoðunar. Sú vinna er enn í gangi og breytingar á sjónvarpsfréttum eru eitt af þeim skrefum sem nauðsynleg hafa verið í aðlögun starfseminnar að breyttum rekstrarforsendum.
Sjálfbærni einkarekinna fjölmiðla byggist ekki á styrkjum eða endurúthlutun tekna frá ríkismiðlinum heldur á jafnræði í samkeppni og skýru aðgreindu hlutverki ríkis og markaðar. Þegar ríkisrekinn miðill starfar á auglýsingamarkaði á öðrum forsendum en einkareknir miðlar er samkeppnisstaðan skekkt og hvatar til uppbyggingar veikjast. Rök sem byggja á því að auglýsingafé haldist aðeins innanlands með virkri þátttöku ríkisrekins miðils fela sjálfkrafa í sér að einkareknir fjölmiðlar fá ekki raunhæft tækifæri til að byggja upp styrk eða samkeppnishæfni. Slík nálgun tryggir hvorki sjálfbærni né fjölbreytni heldur festir markaðinn í þróun sem er þegar í gangi og leiðir til þess að innlendir einkareknir miðlar veikjast gagnvart alþjóðlegri samkeppni.
Fjarskiptastofa skyldaði Sýn til að verða við flutningsréttarkröfu Símans hf. sem byggð var á ákvæðum fjölmiðlalaga. Frá upphafi hafði Sýn lagt áherslu á að allir neytendur hefðu jafnan aðgang að efninu, óháð fjarskiptafyrirtæki, í gegnum opið app Sýnar og eigin dreifileiðir. Með ákvörðun Fjarskiptastofu var hins vegar gengið lengra þar sem Sýn var gert skylt að afhenda efnið inn á lokað kerfi samkeppnisaðila. Málið fékk flýtimeðferð fyrir dómstólum en áður en það var flutt náðist samkomulag, þann 30. janúar 2026, milli Sýnar og Símans um helstu skilmála um heildsölu/dreifingu á sjónvarpsþjónustu og að fella málið niður fyrir dómi. Var það mat Sýnar, eins og á stóð, að heillvænlegast væri að semja um lyktir málsins á viðskiptalegum forsendum og draga þannig úr óvissu, sem annars myndi fylgja tímafrekum málaferlum.
Eftir stendur að Sýn telur inngrip Fjarskiptastofu (FST) hafi verið í andstöðu við eignarréttarákvæði stjórnarskrár og draga úr virði erlendra og innlendra sýningarétta. Þegar sá sem ber alla fjárhagslega áhættu af kaupum á slíkum réttindum getur ekki tryggt sér raunverulega aðgreiningu á markaði, rýrir það óhjákvæmilega viðskiptalegt virði þeirra.
Fjarskipti eru meðal mikilvægustu innviða samfélagsins og rekstur þeirra krefst stöðugleika, öryggis og ábyrgðar. Áhersla Sýnar á þessum sviðum stendur óhögguð og er grundvallarforsenda starfsemi félagsins og trausts viðskiptavina.
Sjálfbærni er órjúfanlegur hluti af starfsemi Sýnar. Árið 2025 var áfram unnið að því að samþætta sjálfbæra starfshætti í alla starfsemi félagsins, með áherslu á ábyrgð, gagnsæi og skýra áhættustýringu.
Mannauðurinn er lykillinn að öllum árangri sem náðst hefur í rekstri fyrirtækisins. Árið 2025 reyndi á starfsfólk Sýnar í krefjandi aðstæðum. Við þökkum þeim fyrir fagmennsku, seiglu og metnað á árinu og munum áfram leggja áherslu á vinnuumhverfi sem byggir á trausti, skýrum markmiðum og ábyrgð.
Árið 2025 var því ekki ár fullnaðarsigra heldur ár nauðsynlegra ákvarðana sem móta munu rekstur fyrirtækisins til framtíðar. Með skýrari forgangsröðun, bættri yfirsýn yfir afkomu starfssviða og einfaldari rekstraruppbyggingu er Sýn betur í stakk búin til að takast á við þær breytingar sem fram undan eru og skapa hluthöfum og samfélaginu raunverulegt virði til lengri tíma litið.
Við þökkum starfsfólki, viðskiptavinum, samstarfsaðilum og hluthöfum fyrir traust og samvinnu á árinu.
Herdís Dröfn Fjeldsted og Hákon Stefánsson
Forstjóri Sýnar og stjórnarformaður Sýnar