ars4-ars4-img

Birgjastefna

Sýn leggur mikla áherslu á að birgjar, undirbirgjar og verktakar tileinki sér ábyrga starfshætti m.a. með tilliti til umhverfis- og félagslegra þátta, ásamt ábyrgra stjórnarhátta.

Birgjar og verktakar skulu ganga vel um náttúruna við framkvæmdir. Þeir skulu virða rétt starfsfólks síns hvað varðar félagafrelsi, kaup og kjör, að starfsfólk geti sinnt sínu starfi án valds eða nauðungar og að ólögráða börn séu ekki ráðin til vinnu.

Birgjar, verktakar og starfsfólk á þeirra vegum skulu hafa jöfn tækifæri án mismunar með tilliti til kyns, kynþáttar, trúarbragða, aldurs, fötlunar, kynhneigðar, þjóðernis eða skoðana.

Birgjar og verktakar skulu beita sér gegn spillingu, mútum, fjárkúgunum og svikum og beita viðurkenndum siðareglum í viðskiptum og forðast hagsmunaárekstra milliliða og undirverktaka.

ars4-ars4-img

Kröfur til birgja

Sýn leggur mikla áherslu á að standast ítrustu kröfur um upplýsingaöryggi. Tilskipunin NIS2 tók gildi í Evrópu í október 2024 og er í innleiðingu á Íslandi en í því felast auknar kröfur til birgja.

Sýn gerir kröfur til þess að birgi eða verktaki geri ráðstafanir til að stjórna áhættu í netöryggi. Hann skal vera með dulkóðun, framkvæma reglulega öryggisprófanir og vera með verklagsreglur vegna öryggisatvika.

Sýn velur með áhættumati við hvaða birgja er samið út frá viðeigandi öryggisráðstöfunum sem birginn tryggir að hann fylgi og skulu undirbirgjar og/eða þriðju aðilar jafnframt uppfylla ítrustu kröfur um áhrif á net eða kerfi. Allir birgjar sem tengjast hugbúnaði skuli vera með skilgreinda staðla í netöryggi.

Í NIS2 eru kröfur um að setja þurfi skýrar verklagsreglur um tilkynningu atvika í samningum, hverjir tilkynna og hvaða upplýsingum er deilt til hverra. Enn fremur þurfa birgjar að tryggja að eftirliti stjórnenda sé sinnt og skilgreina ábyrgð vel.

Árs- & sjálfbærniskýrsla 2025