Voda-stod2-appid-Voda-stod2-appid-img

Sjónvarpsapp Sýnar

Þú getur horft hvar og hvenær sem er með sjónvarpsappi Sýnar. Appið er aðgengilegt fyrir Android og iOS síma.

Voda-stod2-appid-Voda-stod2-appid-img
Simi - Stöð 2 appið-Simi - Stöð 2 appið-img
Simi - Stöð 2 appið-Simi - Stöð 2 appið-img

Hvað er hægt að gera í appinu?

Sjónvarpsapp Sýnar er app fyrir snjallsíma og spjaldtölvur sem allir geta sótt sér án endurgjalds. Með því getur þú horft á sjónvarpsútsendingar, notað tímavél til að flakka í dagskránni og séð frelsisefni sjónvarpsstöðvanna. Áskrifendur að Sýn+ geta streymt efni hvar og hvenær sem er ásamt því að horfa á þær stöðvar sem þeir eru áskrifendur að. Áskrifendur geta horft á Sýn, Sýn Sport og Sýn+ á WiFi innan evrópska efnahagssvæðisins.

Stuðningur við Chromecast og AirPlay
Stuðningur við Chromecast og AirPlay

Þú getur tengt appið við Chromecast og AirPlay sem þýðir að þeir sem eiga Chromecast tæki eða Apple TV geta varpað myndefninu úr símanum yfir á sjónvarpsskjáinn.

Tímavélin
Tímavélin

Með tímavél er hægt að flakka allt að fjórar klukkustundir til baka í sjónvarpsútsendingunni. Sé efni pantað í Sýn+ í appinu er hægt að stöðva áhorf, færa sig yfir í sjónvarpið og horfa frá þeim stað sem spilun var hætt.

Horfðu í Apple TV og í Vefsjónvarpi
Horfðu í Apple TV og í Vefsjónvarpi

Notendur geta sótt appið í Appstore í gegn um AppleTV 4 eða Apple TV 4K. Á slóðinni sjonvarp.syn.is má svo finna vafraútgáfu sem hægt er að njóta alls þess sama efnis og er í boði í gegnum símtækin og AppleTV.

Fylgdu okkur

Það er betra að vera með Sýn

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.

Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528

certificatecertificatecertificatecertificatecertificate