Fréttir
Þorláksmessutónleikar Bubba 2021
20. desember 2021

Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra.
Tónleikanir hefjast kl. 22:00 23. desember.
Tónleikarnir eru merkilegir fyrir þær sakir að þetta verður í 36. sinn sem Bubbi stendur fyrir Þorláksmessutónleikum.
Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985 eða fyrir 36 árum. Þótt staðsetning tónleikana hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.
Leiðbeiningar um kaup
Hvernig kaupi ég tónleikana í gegnum myndlykil frá Vodafone?
Með því að ýta á rauða hnappinn með Vodafone merkinu á fjarstýringunni og fara þannig í valmynd á myndlykli. Þar ættu tónleikarnir að birtast undir Viðburðir ef flett er örlítið niður í valmynd.
Velja viðburðinn, samþykkja skilmála og staðfesta kaup.
Með því að staðfesta kaup virkjast tímabundin opnun á rás 901. Þú gætir þurft að endurræsa myndlykilinn þinn.
Viðburðinn verður aðgengilegur á rás 901 og mun sú rás opnast fljótlega eftir að kaup hafa verið kláruð.
Kaupin munu birtast á fjarskiptareikningi þínum um næstu mánaðamót.
Hvernig horfi ég á tónleikana í Stöð 2 appinu?
Það þarf að fara inn á vefsjónvarp Stöðvar 2 og skrá sig þar inn með sama aðgang og notaður er í appinu.
Tónleikarnir eru undir Viðburðir á forsíðunni í valmyndinni.
Tónleikarnir verða aðgengilegir á rásinni „Þorláksmessutónleikar Bubba“ í Stöð 2 appinu. Hún opnast á tónleikadeginum.
Spurt og Svarað
Get ég spólað til baka eða pásað útsendinguna í myndlykli Vodafone? Já, hægt er að spóla til baka og pása á meðan útsendingu stendur. Hvar get ég fengið tæknilega aðstoð sem varðar myndlykil Vodafone?
Þjónustuverið er opið frá kl. 09-20 á Þorláksmessu, eftir það tekur Vaka, nýja spjallmennið okkar við á netspjalli Vodafone, hún svarar öllum helstu spurningum um tónleikana. Verða tónleikarnir aðgengilegir í tímavél í myndlykil Vodafone? Já, þeir verða aðgengilegir í 48 klst eftir að tónleikum lýkur 23. desember í gegnum tímavél Vodafone í myndlykli. Eftir það verður ekki hægt að horfa á tónleikana. Verða tónleikarnir aðgengilegir í tímavél í Stöð 2 appinu? Nei, tónleikarnir verða ekki aðgengilegir í gegnum tímavél í Stöð 2 appinu. Get ég notað Stöð 2 appið? Já, hægt verður að horfa á tónleikana í gegnum appið með því að kaupa aðgang á sjonvarp.stod2.is. Rásin „Þorláksmessutónleikar Bubba“ mun opnast á tónleikadag í Stöð 2 appinu. Sjá nánari leiðbeiningar ofar í þessari frétt. Get ég keypt aðgang í gegn um myndlykilinn minn? Já, viðburðurinn ætti að birtast í viðmóti í myndlykli. Sjá nánari leiðbeiningar um kaup á viðburði með myndlykli ofar í þessari frétt.
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



