Fréttir

Orkan semur við Vodafone

27. júní 2023

Orkan-Orkan-img

Á dögunum gerði Orkan samstarfssamning við Vodafone um alhliða þjónustu í fjarskiptum. Orkan er með 71 þjónustustöð hringinn í kringum landið þar sem að áhersla er lögð á að mæta ólíkum þörfum viðskiptavina með fjölbreyttum orkugjöfum, veitingum og afhendingu á póstsendingum. “Við erum einstaklega glöð að fara í samstarf með Vodafone þar sem þau hafa mikla reynslu í fjarskiptum. Með öflugu 5G sambandi sjáum við tækifæri á að koma Orkunni úr landlínum yfir í framtíðina með hagkvæmum hætti. Við bjóðum afgreiðslur til viðskiptavina allan sólarhringinn á 71 þjónustustöð víða um land allt og mun samstarfið styrkja þjónustu okkar til viðskiptavina” segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar.

„Það er okkur mikið ánægjuefni að fá Orkuna til samstarfs. Við hjá Vodafone leggjum sérstaka áherslu á að þjónusta stærri fyrirtæki þar sem þjónusta og snerpa skiptir öllu máli. Orkan er með víðfeðma starfsemi og skiptir máli að fyrirtækið sé vel tengt um allt land og hafi sífellt aðgengi að tækniþjónustu Vodafone allan sólarhringinn“ segir Trausti Guðmundsson forstöðumaður fyrirtækjasviðs Vodafone.

Deila

Það er betra að vera með Sýn

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.

Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528

certificatecertificatecertificatecertificate