Fréttir
Brekkusöngurinn á Þjóðhátíð í beinu streymi hjá Vodafone
4. ágúst 2023

Brekkusöngurinn á Þjóðhátíð þann 6 ágúst verður aðgengilegur í beinu streymi á myndlyklum Vodafone og vefsjónvarpi Stöðvar 2. Útsending hefst kl 20:00 og dagskrá hefst kl 21:00. Einnig verður klukkutíma útsending öllum opin á samfélagsmiðlum Vodafone og Stöðvar 2.
Nú er hægt að taka þátt í brekkusöngnum hvar sem er, heima í stofu, í sumarbústað, í útilegunni eða frá sólarströndinni. Hægt er að kaupa aðgang að streyminu á myndlyklum Vodafone og vefsjónvarpi Stöðvar 2. Allar upplýsingar um streymið má finna á heimasíðu og samfélagsmiðlum Vodafone.
Dagskrá kvöldsins: 20:00 – Upphitun 21:00 – Bríet 21:40 – Jón Ólafs og vinir: Björn Jörundur, Daníel Ágúst, Eyjólfur Kristjánsson og Hildur Vala. Stuðlabandið sér um undirspil. 23:00 – Brekkusöngur – Magnús Kjartan 00:00 – Blys
Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins mun stýra brekkusöngnum aftur þetta árið - og allir geta sungið með hvar sem þeir eru í heiminum.
Leiðbeiningar:
Hvernig kaupi ég tónleikana í gegnum myndlykil frá Vodafone?
Með því að ýta á rauða hnappinn með Vodafone merkinu á fjarstýringunni og fara þannig í valmynd á myndlykli. Þar ættu tónleikarnir að birtast undir Viðburðir ef flett er örlítið niður í valmynd.
Velja viðburðinn, samþykkja skilmála og staðfesta kaup.
Með því að staðfesta kaup virkjast tímabundin opnun á rás 900. Þú gætir þurft að endurræsa myndlykilinn þinn.
Viðburðinn verður aðgengilegur á rás 900 og mun sú rás opnast fljótlega eftir að kaup hafa verið kláruð.
Kaupin munu birtast á fjarskiptareikningi þínum um næstu mánaðamót.
Hvernig horfi ég á tónleikana í Stöð 2 appinu?
1. Það þarf að fara inn á vefsjónvarp Stöðvar 2 og skrá sig þar inn með sama aðgang og notaður er í appinu. 2. Tónleikarnir eru undir Viðburðir á forsíðunni í valmyndinni. 3. Tónleikarnir verða aðgengilegir á rásinni „Brekkusöngur 2023“ í Stöð 2 appinu. Hún opnast á tónleikadeginum.
Spurt og svarað
Get ég spólað til baka eða pásað útsendinguna í myndlykli Vodafone? Já, hægt er að spóla til baka og pása á meðan útsendingu stendur.
Hvar get ég fengið tæknilega aðstoð sem varðar myndlykil Vodafone? Þú getur haft samband við þjónustuver Vodafone hér.
Verða tónleikarnir aðgengilegir í tímavél í myndlykil Vodafone? Já, þeir verða aðgengilegir í 48 klst eftir að tónleikum lýkur í gegnum tímavél Vodafone í myndlykli. Eftir það verður ekki hægt að horfa á tónleikana, nema með því að kaupa þá aftur í gegnum leiguna í myndlyklinum.
Verða tónleikarnir aðgengilegir í tímavél í Stöð 2 appinu? Nei, tónleikarnir verða ekki aðgengilegir í gegnum tímaflakk í Stöð 2 appinu.
Get ég notað Stöð 2 appið? Já, hægt verður að horfa á tónleikana í gegnum appið með því að kaupa miða fyrst í gegnum myndlykil eða í gegnum sjonvarp.stod2.is. Viðburðurinn opnast í Stöð 2 appinu á tónleikadeginum. Sjá nánari leiðbeiningar ofar í þessari frétt.
Get ég keypt miða í gegnum myndlykilinn minn? Já, viðburðurinn ætti að birtast í viðmóti í myndlykli. Sjá nánari leiðbeiningar um kaup á viðburði með myndlykli ofar í þessari frétt.
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



