Fréttir
Brekkusöngur í beinni
30. júní 2021

Nú verður brekkusöngurinn frægi í fyrsta skipti aðgengilegur í beinu streymi, sunnudaginn 1. ágúst. Bein útsending frá Eyjum og full dagskrá. Útsending hefst kl 20:30 og dagskrá hefst kl. 21:00.
Við mælum með að kaupa aðgang að brekkusöngnum beint í gegnum myndlykil Vodafone. Þú finnur tónleikana undir Viðburðir í myndlykli eða í vefsjónvarpi Stöðvar 2 ef þú kýst að horfa á í Stöð 2 appinu.
Ef þú hefur nú þegar keypt miða á tix.is þá þarf að virkja kóðann, sjá nánari leiðbeiningar hér fyrir neðan.
Ef einhverjar spurningar vakna á sunnudeginum getur þú haft samband við okkur á netspjallinu til kl. 20:00. Við kappkostum að svara öllum fyrirspurnum hratt og örugglega.
Góða skemmtun!
Leiðbeiningar:
Hvernig kaupi ég tónleikana í gegnum myndlykil frá Vodafone?
Með því að ýta á rauða hnappinn með Vodafone merkinu á fjarstýringunni og fara þannig í valmynd á myndlykli. Þar ættu tónleikarnir að birtast undir Viðburðir ef flett er örlítið niður í valmynd.
Velja viðburðinn, samþykkja skilmála og staðfesta kaup.
Með því að staðfesta kaup virkjast tímabundin opnun á rás 900. Þú gætir þurft að endurræsa myndlykilinn þinn.
Viðburðinn verður aðgengilegur á rás 900 og mun sú rás opnast fljótlega eftir að kaup hafa verið kláruð.
Kaupin munu birtast á fjarskiptareikningi þínum um næstu mánaðamót.
Hvernig horfi ég á tónleikana í Stöð 2 appinu?
Það þarf að fara inn á vefsjónvarp Stöðvar 2 og skrá sig þar inn með sama aðgang og notaður er í appinu.
Tónleikarnir eru undir Viðburðir á forsíðunni í valmyndinni.
Tónleikarnir verða aðgengilegir á rásinni „Brekkusöngur á Þjóðhátíð 2021“ í Stöð 2 appinu. Hún opnast á tónleikadeginum.
Hvernig virkja ég kóða frá tix.is ?
Fyrst þarf að virkja kóðann hér (Athugið: Fullt verð birtist í upphafsskrefinu en breytist þegar kóði er sleginn inn)
Smella á “Áfram” og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
Slá inn kóðann í reitinn “Gjafakóði” og smella á “Virkja”. Ef kóðinn er í lagi þá breytist verðið í 0 kr.
Smella á “Staðfesta kaup” og þá opnast á tónleikana á rás 900 í myndlyklinum þínum frá Vodafone.
Rásin verður opin fram að viðburðinum en upphitun fyrir brekkusönginn hefst klukkan 21:00 og svo hefst sjálfur brekkusöngurinn klukkan 23:00, sunnudaginn 1. ágúst. Ef rásin fer ekki í gang eftir að þú hefur slegið inn kóðann vinsamlegast hafðu samband við okkur í gegnum netspjallið okkar hér.
Spurt og svarað
Get ég spólað til baka eða pásað útsendinguna í myndlykli Vodafone? Já, hægt er að spóla til baka og pása á meðan útsendingu stendur.
Hvar get ég fengið tæknilega aðstoð sem varðar myndlykil Vodafone? Þú getur haft samband við þjónustuver Vodafone hér.
Verða tónleikarnir aðgengilegir í tímavél í myndlykil Vodafone? Já, þeir verða aðgengilegir í 48 klst eftir að tónleikum lýkur 1. ágúst í gegnum tímavél Vodafone í myndlykli. Eftir það verður ekki hægt að horfa á tónleikana, nema með því að kaupa þá aftur í gegnum leiguna í myndlyklinum.
Verða tónleikarnir aðgengilegir í tímavél í Stöð 2 appinu? Nei, tónleikarnir verða ekki aðgengilegir í gegnum tímaflakk í Stöð 2 appinu.
Get ég notað Stöð 2 appið? Já, hægt verður að horfa á tónleikana í gegnum appið með því að kaupa miða fyrst í gegnum myndlykil eða í gegnum sjonvarp.stod2.is. Viðburðurinn opnast í Stöð 2 appinu þann 1. ágúst á rás 900. Sjá nánari leiðbeiningar ofar í þessari frétt.
Get ég keypt miða í gegn um myndlykilinn minn? Já, viðburðurinn ætti að birtast í viðmóti í myndlykli. Sjá nánari leiðbeiningar um kaup á viðburði með myndlykli ofar í þessari frétt.
Ég keypti kóða fyrir myndlykil Vodafone. Get ég horft á tónleikana í snjallsímanum mínum eða spjaldtölvu? Já, rásin mun einnig opnast í Stöð 2 appinu fyrir þá sem eru með myndlykil frá Vodafone. Rásin mun opnast 1. ágúst í appinu.
Ég virkjaði kóðann í einum myndlykli Vodafone en ég er búin að breyta um skoðun og núna vil ég horfa á tónleikana í öðrum myndlykli Vodafone, hvernig geri ég það? Hægt er að færa viðburðinn á milli Vodafone myndlykla á Mínum síðum
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



