Gotti-Gotti-img

Vottanir

Sýn leggur mikla áherslu öryggismál og fagleg vinnubrögð í starfsemi félagsins. Í byrjun júní 2025 fékk félagið staðfest endurnýjun á vottun í samræmi við alþjóðastaðalinn ISO27001, stjórnkerfi um upplýsingaöryggi. ISO27001 vottunin er mikilvæg trygging fyrir viðskiptavini okkar og staðfestir að unnið sé í samræmi við kröfur staðalsins og að í Sýn sé starfrækt virkt stjórnkerfi til að tryggja öryggi upplýsinga.

Gotti-Gotti-img

Í maí 2025 var framkvæmd úttekt á jafnlaunakerfi Sýnar og mæltu vottunaraðila með því að Sýn fengið áframhaldandi vottun samkvæmt staðlinum ÍST 85:2012, um jafnlaunakerfi. Vottunin staðfestir að hjá Sýn er starfrækt jafnlaunakerfi sem stenst kröfur staðalsins og laga nr. 50/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

Sýn leggur áherslu á að vera til fyrirmyndar í vinnuverndarmálum og einsetur sér að vernda starfsfólk, verktaka og aðra þá sem starfa fyrir félagið og skapa slysalausa vinnuaðstöðu. Sýn hefur innleitt verklag í samræmi við alþjóðlega staðalinn ISO45001:2018, stjórnkerfi um heilbrigði og öryggi á vinnustað.

Sýn hefur komið upp virku stjórnkerfi sem inniheldur ferla og skipulag í samræmi við staðlana og þau lög og reglur sem gilda um félagið. Kerfið tryggir að unnið sé faglega í samræmi við þekkta ferla og skipulag sem styður við markmið Sýnar um öryggi, heilbrigði og vinnuumhverfi á vinnustöðum starfsfólks, verktaka eða þriðja aðila sem vinna fyrir fyrirtæki.

Árs- & sjálfbærniskýrsla 2025