
Um Sýn
Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.

Í gegnum tíðina hefur félagið tekið á sig ýmsar myndir, þróast í takt við tímann, víkkað út þjónustuframboð sitt og starfað undir mörgum mismunandi vörumerkjum. Á árinu komum við saman í fyrsta sinn að fullu undir merkjum Sýnar og komum fram sem ein heild með sameiginlega sýn sem mótuð er úr því besta úr fjölbreyttri arfleifð okkar. Sýn er með starfsemi í Reykjavík og á Akureyri.
Saga Sýnar er samofin sögu frumkvöðla sem þorðu að ögra ríkjandi kerfum, brjóta upp einokun og bjóða upp á ferska nálgun í þjónustu við viðskiptavini. Þeir lögðu grunninn að því sem við erum í dag og vísa okkur áfram veginn.
Við tökum fagnandi á móti framtíðinni, hræðumst ekki breytingar og þorum að hrista upp í hlutunum. Við munum halda áfram að taka djarfar ákvarðanir og þróast í takt við þarfir og væntingar viðskiptavina okkar. Vilt þú hraðara net? Meira sport? Áreiðanlegar upplýsingar? Eða einfaldlega meiri gleði? Okkar metnaður liggur i því að mæta þínum þörfum - Þín sýn er okkar Sýn.